Andvari - 01.01.1958, Qupperneq 78
74
Aðalgeir Kristjánsson
ANDVARI
lilýjustu árnaðaróskir vegna velgengni yðar og yðar hágöfugu
fjölskyldu, og hugheilustu þakkir fyrir auðsýndan góðvilja og
nú síðast hið háttvirta bréf, skrifað 30. sept. síðastliðinn, sem
þér voruð svo góður að heiðra mig með, þegar síðasta póstskip
kom.
Eg vænti þess, að það verði hlutskipti mitt að vera á þing-
inu næsta sumar, en því miður, af því sem ráða má af nýjustu
tillögunum, hefi eg litla von um að verða þar að nokkru liði.
En samt — það er skylda mín vegna konungs og ættjarðarinnar
að vinna að því, sem verða má til bóta, eins og eg framast má.
Eg dreg ekki í efa, að yðar hágöfgi verður skýrt rækilega frá
ástandinu héma með póstskipinu, sumpart gegnum embættis-
þjónustuna, en einnig mun dr. Egilsen, sem sagt er, að ætli að
sigla utan, vegna hinna ógiftusamlegu atburða í Latínuskólan-
um, leiða yður í allan sannleikann. Svo rnjög sem eg virði
dr. Egilsen sem mann og sem lærdómsmann, jafnlitla trú hefi
eg á því, að hann sé hæfur til að rata hina réttu leið varðandi
skólann, því að í honum eru ekki einungis ælingjar, heldur
einnig að miklum hluta hálf- eða fullorðnir þverhöfðar, sem hafa
lengi litið á sig sem sjálfstæða heild, sem ekki lætur kúga sig
til að hlýða ákvæðum, sem sprottin eru af stundarduttlungum,
eins og að vera í algjöru bindindi. Þessi ákvæði og önnur slík
voru orsök til skólauppþotsins, en tæpast er hægt að láta þá sæta
afarkostum. Samblásturinn gegn dómkirkjuprestinum virðist mér
miklu varhugaverðari, því að eftir mínu áliti er það önnur tilraun
lýðsins, sem ætlar sér að ná með ofbeldi valdi til að setja menn
í embætti og reka menn frá, og það jafnt þó að konunglegir
embættismenn eigi í hlut. Eg er því þeirrar skoðunar, að þessi
uppþot séu stjórnmálalegs eðlis. Ef þessi tilraun heppnast, er
talað um tvo aðra embættismenn hér, sem fyrirhugað er, að fái
sömu meðferð, og sem þegar eiga að hafa fengið heilan kross á
hegðunarlista tómlhúsmannanna. Það er ekki hægt annað en að
kenna í brjósti um annað eins göfugmenni og Johnsen prófast,
að hann skuli sæta þvílíkri meðferð og það af versta pakkinu í