Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 85
ANDVARI
Kringum þjóðfundinn 1851
81
liðu; en tímamir hafa breytzt meir en vænzt hefir verið og
reiknað hefir verið með, því að áróðurinn og sundrungin ráða
hér miklu, eins og víðar í landinu, en í þessum bæ virðist erf-
iðara að ganga milli bols og höfuðs á þessu tvennu en á nokkr-
um öðmm stað á landinu. Raunar get eg ekki talið óspektirnar
í skólanum stjórnmálalegs eðlis, heldur stafa þær einungis af
skorti á aga, því að Egilsen rektor hefir raunar aldrei verið vax-
inn þeim vanda að gegna því enrbætti, og eg get fullyrt, að
svipaða ólgu getur ef til vill borið aftur að höndurn, ef hann
verður rektor að nýju; en hitt hefir vakið mér furðu, að eg
hefi heyrt þann orðróm, að rektor hafi haft í huga, er hann
bjóst til ferðar til Kaupmannahafnar, að benda á mig sem þann,
sem hefði átt hlutdeild að því, sem gerzt hefir, um leið og eg
get guðsvarið, að eg gerði allt, sem í mínu valdi stóð sem góður
borgari til að þagga niður þann kurr, sem upp var kominn; en
mér kom aldrei til hugar, að önnur eins ræða og rektor Egilsen
hélt mundi hljóma frá nokkurs manns munni, né heldur að
slíkar yrðu afleiðingarnar, því ekki datt mér í hug, að ræðan
mundi leiða af sér ekkert minna en ,,pereat“, en það gæti aldrei
komið út yfir mínar varir, og eg var alveg óvitandi þess, að það
yrði hrópað; en eftir að ógæfan hafði skollið yfir, gerði eg mér
allt far urn að fá það tekið aftur eða túlkað í þrengsta skilningi
um hann sem rektor en ekki sem kennara; en þar sem fyrir-
rennari nrinn er með í leiknum, að því er sagt er, og hann er
vafalaust ákveðinn andstæðingur minn, hann fékk Egilsen til
þess að vilja ekki ganga inn á nokkuð, en allt er notað til þess
að sundra skólanum, sumpart til að telja kennarana á að fara
frá, en sumpart til að reka nemendurna — ef til vill þá minnst
seku — út á miðjum vetri, þá get eg ekki neitað því, að eg sem
cinstaklingur gat ekki annað en ráðið frá því, að slíkt spor yrði
stigið og eg veit með vissu, að eg hefi ekki gert annað en það,
sem eg helzt óskaði, að væri á allra vitorði, eins og allt hefði
orðið að engu, ef farið hefði verið eftir því ráði í tíma, sem cg
gaf. Nú er það víst, að skólinn þarfnast góðs rektors, og eg álít,