Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1957, Page 34

Andvari - 01.01.1957, Page 34
30 J. Eyþórsson andvam þykist óg eiga til íhans að rekja drjúgan þátt þeirrar vanheilsu, sem he'fur amað að mér um sinn. — Umvandanir allar og ávítur hafa látið mér illa, einkum fyrst framan af. Það er sannast að segja, að þá varð ég að áminna sjálfan mig — oft rækilega, áður en ég gæti tekið nemendur ril bænar. Vafalaust hefði þeim létt í skapi, ef þeir hefðu getað séS í huga mér þá. Eftirgangsmunir um stundvísi nem- enda héfur eklki heldur verið ánægjulegt starf alla ja'fna. Þó er þess aS geta, að það hefur veitt mér 'færi á að kynnast mjög mörgum heimilum í þessum bæ. Leiðast af öilu 'hefur mér iþótt éftirlit með nemendum á samkom- um. Þá er því líkast sem þeir hafi skipt um ham og gengiS götunni á vald. Sií'kt eftirlit, slík lögreglu- og þéfarastöif eru bæði óviður- kvæmileg og óvirðuleg, enda þótt þau hafi orSið að vinna sem önnur, þegar við þurfti. I lins er jafnframt að geta, að margar sam'komur hafa verið haldnar hér svo 'fagrar og ánægjulegar, sem mest mátti verða, meða'l annars minnist ég þar árshátíða Fjölnis, tónlistarkvöld- anna og íþó umfram aht athafnar þeirrar, er vígður var hátíðasalur- inn eftir hernámið 1942. Þrengslin 'í skólanum hafa o'ft gert mér gramt i geði og gera cnn. Þau hafa valdið því m. a., að ekki héfur veriS unnt að fkoma fram ýmsum umbótum á kennslu, eirikum í náttúrufræði og eðlis- fræði, sem óg héf talið nauðsynlegar frá öndverðu, og þau hafa einnig hindrað það, að hægt væri að ‘bæta um félagslí’f nemenda, svo sem samkomuhald. En þessi mál mun ég ekki ræða hér frekar. Loks er þess að geta, að þegar ég itók við embætti minu, fylgdi því íbúö hér í skólahúsinu. SíSan héf ég flutt búfedum átta sinnum, verið þrisvar heimilislaus, svo að mánuSum slkipti, eða orðið að búa fyt)r austan HeiSi. Þetta mun vera mét meðal íslenzkra skólastjóra. Nú kem ég að hinu, sem veitt héfur mér ánægju og uppörvun í starfi mínu. Þar eru efnin auðskæf. Fyrst itel ég kennsluna, þ° að ékki taki hún til skólastjórnar. AU’t frá öndvcrðu hefur mér fallið vel kennsla. Þessi stundardvöl með nemendum innan fjögurra veggj3 kenns'lustófunnar héfur hverju sinni veitt mér gleði og fullnægmg11- — Samstarfið viS hennarana hefur orðið mér uppspretta ánægju og

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.