Andvari - 01.01.1957, Qupperneq 60
56
Þorkell Jóhannesson
ANDVARI
För Þorláks Ó. Johnsons á fund Tryggva og samningarnir við
hann taka hér skarið af. Hér er um að ræða formlega staðfest-
ingu á því, sem áður hafði á milli þeirra farið í bréfum, og mála-
lokin verða þau, að Tiyggvi tryggir Þorláki fulla tölu þess fjár,
sem umbjóðandi hans hafði samþykkt að láta kaupa hér á landi,
allt að B000 fjár, eða þrefalt fleira fé en um virðist hafa verið
rætt í fyrstu, enda hafa þá allir hreppar sýslunnar sameinazt um
málið undir lorustu Tryggva.
Sauðasalan til Bretlands haustið 1866 er í sjálfu sér svo ein-
stæður atburður, að vert væri, að um liana væri ritað langt mál
og ýtarlegt. Eigi verður það samt gert hér, að öðru en því er
varðar Tryggva Gunnarsson sjálfan. Þess skal aðeins getið, að
fjártökuskip það, sem taka átti land á Austfjörðum og í Húna-
vatnssýslu að atbeina Eiríks Magnússonar og milligöngu Þorláks
O. Johnsons, fór aldrei norður fyrir land en tók fullfermi eystra,
rúmlega 2000 fjár. Skipið var illa úthúið til þessarar farar. Það
hreppti óveður á leiðinni til Englands og fórst nær helmingur
af fénu í þeim hrakningum. Er hörmulegt að lesa frásagnir um
för þessa, en sjálfur hefir Eiríkur Magnússon lýst henni í bréfi
til Jóns Sigurðssonar, sbr. Ævisögu Eiríks Magnússonar, eftir
Stefán Einarsson, bls. 72—74. Urðu umbjóðendur Eiríks fyrir
miklu tjóni af sauðakaupum þessum. Af Þorláki Ó. Johnson er
aftur á móti það að segja, að er hann kom aftur til Englands úr
íslandsför sinni frá því að semja við Tryggva, var kaupmaður sá,
er í fyrstu hafði gert hann út til sauðakaupanna, hættur við
allt saman. Þorláki tókst samt að fá annan mann til að ganga
inn í sölusamningana. Var nú allt til reiðu, peningar fengnir
og skip til flutninganna, en þá vildi svo illa til, að skipið strand-
aði við Orkneyjar á leiðinni til íslands. Segir Eiríkur Magnússon,
að þeir félagar hefði útvegað sér annað skip og ætlað að halda
því til íslands, en þá liafi fregnir horizt af óförum þcirra Eiríks
og varð ekkert úr þeirri för. Líklega er hér eitthvað málum
Idandað, því þeir Eiríkur lögðu frá Eskifirði til Englands 4.
október og hafa varla komið til Leith fyrri en um 10. okt., eða