Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1957, Page 19

Andvari - 01.01.1957, Page 19
andvari Pálmi Hannesson rektor 15 1 Reykjavík og Kaupmannahöfn. Stofnuðu þau heimili sitt á Akureyri og áttu þar heima til haustsins 1929, er þau flytjast til Reykjavíkur. Pálrni undi vel hag sínum á Akureyri. Kennslan var honum senr leikur, langt sumarleyfi og gott tækifæri til ferðalaga og rannsókna. RANNSÓKNAFERÐIR. DAGBÆKUR. Pálmi Hannes- s°n notaði því nær hvert sumarleyfi sitt frá 1923 til 1949 til rannsóknaferða á íslandi. Eru dagbækur geymdar frá flestum ferðunum, og virðist mér ástæða til þess að geta þeirra stuttlega í réttri tímaröð. Sumarið 1922 fór Pálmi fyrstu rannsóknaför sína. Hann f*yrjar ferð sína í Skorradal og heldur til Þingvalla með marga hesta. Verður d\ölin á þeirn fræga stað næsta söguleg og skemmti- ^ega lýst í hreinritaðri daghók. Síöan mun Pálmi hafa haldið álram norður Kjöl, en dagbók úr þeirri ferð virðist glötuð. Arið eftir, 1923, fékk Pálrni styrk úr Danmerkurdeild sátt- rnálasjóðs til rannsókna á hálendinu, og ákvað að ferðast um Arnarvatnsheiöi, Kjöl og Eyvindarstaðaheiði. Tveir danskir jarð- fræðinemar, Th. Biering-Pedersen og S. A. Andersen réðust til ferðar með honum. Síðar þetta sumar slóst hann í för með Guðmundi G. Bárðar- syni menntaskólakennara til Oskju ásarnt Biering-Pedersen. ^un sú för hafa haft mikil áhrif á Pálrna og vakið fyrir alvöru áhuga hans á jarðfræði íslands og sérstaklega eldfjöllum. Af Oskju hefur hann ritað greinagóða lýsingu á glæsilegu máli. Ehn þessar mundir eða fyrr kynntist Pálmi dönskum land- ræðikandidat, Niels Nielsen, síðar prófessor í þeirri grein við lainarháskóla. Nielsen var ótrauður til ferðalaga og laginn að utvega farareyri. Hafði hann betri aðstöðu til að koma út rit- gcrðum og meiri tíma til að skrifa þær heldur en Pálmi, sem 'ar nemandi. Er skemmst af því að segja, að Nielsen hefur að 'Uestu leyti einn skráð um ferðir þeirra og rannsóknir, þótt Pálmi

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.