Andvari - 01.01.1957, Blaðsíða 42
38
Sigurður Þórarinsson
andvari
Itarlegustu upplýsingarnar um byggðina við rætur Knappa-
fellsjökuls er að hafa úr máldögununr, þessum merkilegu og of
lítið notuðu heimildum um íslenzka byggðasögu. Eg vil votta
Magnúsi Má, prófessor, þakklæti mitt fyrir það, að bann er nú
tekinn að vinna úr þessurn merkilega efnivið og fyrir þá bjálp,
sem hann hefur veitt mér í því elni.
Elzti máldagi byggðarinnar rnilli Breiðársands og Lómagnúps-
sands er talinn vera frá ofanverðri f2. öld. Þar segir:
„Maríu kirkja sú, er stendur að Rauðalæk, á heimaland allt
og Ellaðnaholt, Langanes og Bakka með öllum gæSum, eyrar
allar þær er Hólum liafa fylgt, þrjá hluti í Ingólfshöfða, en tvo
hluti á sá, er býr á Eyrarhorni. Kirkjan á hálfa veiði. Hún a
engjateig í Gegnishólum, 30 hrossa skal liafa í Krossholts-
land frá Rauðalæk bæði vetur og surnur. 15 yxna gamalla i
Hóla land, 40 geldinga annars hundraðs skal hafa í Fjalls land.
Þriðji afréttur er á Kvíármýri. Skóga alla þá, sem eru út fra
Sauðabólsskógi til skógar þess, sem fylgir Skammstöðum. Einn
skógarteigur er inni í dal í Jökulsfelli. Ostgjald er til Rauða-
lækjar um allt hérað milli Breiðársands og Lónragnúpssands.
Kirkjan á 15 kýr og 5 kúgildi í geldum nautum, níutíu ær og
fimm kúgildi í geldum sauðurn, 12 hundraða í metfé, 50 hundraða
í messuskrúða og er allt til virt. Þing þau, sem eru rnilli Graf'
brekku og Jökulsár og kirkjutíundir, nema frá Sandafelli, liggja
til staðar að Rauðalæk. Um staðarfjörur er af því eigi greint,
að þær einar eru, sem áður eru í lögréttu hafðar. En þær við-
komu, er Langanesi fylgja. Sú er vinna af fé þessu, að hafa
presta 2 og djákn. Þar skal eigi sjaldnar syngja en tvær messur
um sinn í hverri viku og alla vigilíu daga og irnbru daga, hvern
dag um langaföstu og annan hvern um jólaföstu. Kirkja á íjöru
milli Kvíár og Hamraenda, hálfa við Sandfellinga. Aðra fjöru 3
hún ein fyrir sunnan Kvíá til Einangra, þriðju fjöru á hún íVrir
Eyrarhorni, tvo hluti alls reka við Sandfellinga, en af afnanu
áttung í matreka".
Þessi eini máldagi veitir eigi litlar upplýsingar. líu bæn