Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1957, Side 99

Andvari - 01.01.1957, Side 99
FISKARN I R eftir Bjama Sæmundsson. Önnur útgáfa með við- auka eftir Jón Jónsson fiskifræðing. Bók þessi fjallar um íslenzka fiska. Hún er tæpar 600 bls. með um 250 myndum. I bók þessari er mikill og merkilegur fróðleikur sam- an kominn, og sá fróðleikur á erindi til margra Islend- inga, eigi aðeins fiskimanna og útvegsmanna, heldur allra þeirra, er vilja fræðast um undirstöðuna að þeim atvinnuvegi, sem stendur undir nálega allri gjaldeyris- öflun þjóðarinnar. Fiskamir hafa lengi verið uppseld bók og mjög eftir henni spurt. Viðtökur þær, er fyrsta útgáfa fékk, voru frábærar, bæði af hálfu sérfræðinga og almennings. Nokkur ummæli náttúrufræðinga um Fiskana: „Agætt rit, mikið að vöxtum, vandað að efni og frágangi, fróð- leg bók, sem er allt í senn: vísindarit, handbók og alþýðlegt fræðirit“. Pálmi Hannesson. „Bók þessa má óeiað telja meðal hinna merkustu bóka, er birzt hafa á íslenzku hin síðari árin — tímamótarit í íslenzkri fiskifræði". Guðm. G. Bárðarson. „Bók þessi á skilið að komast inn á hvert það heimili, er land á að sjó, á eða vatni, sem fiskur gengur í“. Magnús Björnsson. „Bók hans (Bjarna Sæmundssonar) um íslenzka fiska er þrek- virki á sínu sviði, og mega aðrar þjóðir öfunda okkur af slíku riti fyrir almenning". Jón Jónsson. Verð kr. 145,00 ób., 180,00 í skinnlíki, 230,00 í skinn- bandi. Félagsmenn Bókaútgáfu Menningarsjóðs fá 20% af- slátt frá útsöluverði. Bókaútgáfa Menningarsjóðs.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.