Andvari - 01.01.1957, Qupperneq 32
28
J. Eyþórsson
ANDVARI
Það er varla launungarmál, að þeir „yfirbjóðendur" skólans,
sem rektor minnist hér á, eru þeir fyrrverandi menntamálaráð-
herrar Jónas Jónsson og Björn Olafsson. Hinn fyrrnefndi gekkst
fyrir því, að skólahúsið hlaut rækilega viðgerð á árunum 1928—29,
en hinn siðarnefndi lét hefja framkvæmdir við nýja skólabygg-
ingu.
Haustið 1954 voru liðin 25 ár frá því að Pálmi tók við
embætti sínu. Þá var heilsu hans tekið að hnigna. Hann flutti
þá ýtarlega ræðu við skólasetningu, og tel ég hana svo merkilega
heimild um hag skólans í aldarfjórðung og jafnframt hrot úr
sjálfsævisögu Pálma rektors, að ég leyfi mér að taka upp all-
mikinn kafla ræðunnar:
„Hinn 1. ókt. 1929 tók ég við embætti mínu við þessa stofnun og
varpaði þ'á í [fyrsta skipti orðum á nemendur 'hennar. Freistandi væri
fyrir mig að rekja sögu skólans og samskipti mín við hann á þeim
aldarfjórðungi, sem síðan er liðinn. . . . Aldarfjórðungur er ekki
langur tími í ævi stófnunar, sem staðið hefur siðan um siðabót,
eins og þessi skóli mcð fyrirrennurum sínum hefur gert, en sá tím-
inn verður jafnan ríkastur í buga, sem næstur er. Hitt er tvímæla-
laust, að á minni ævi eru síðustu 25 árin hinn vildasti tími og merk-
asti, því að nú tékur að halla fast undan fæti, hvort sern brekkan
verður stutt eða löng. Það er sagt, að menn gerist grobbnir með
aldri, og ég get ekki stillt mig ;um að hreykja mér dálítið hér. Fyrst
nefni ég nokkrar tölur. Mér he'fur auðnazt að útskrifa 1728 stúdenta
a'f 3088, sem héðan 'hafa útskrifazt, !frá því að skólinn 'fluttist liingað
til Reýkjavíkur 1846, eða fullan helming, en um 'fjórðapart allra
þeirra, sem útskrifazt ha'fa frá íslenzkum latínu- og menntaskólum
frá því um siðabót, þ. e. auk þessa skóla Akureyrarskóli, Bessastaða-
skóli, Hólavallarskóli og stólskólarnir að Skálholti og Hólum. ɧ
hef átt 87 samkennara og orðið að sjá mörgum þeirra á bak, einkum
þcim, sem voru við aldur, þegar ég kom hér fyrst. Yfirleitt hafa
samskipti mín við kennarana verið ánægjuleg og mér til mikils gagns-