Andvari - 01.01.1957, Side 29
ANDVARI
Pálmi Hannesson rektor
25
annaðhvort í sírna eða með persónulegri heimsókn. Er óhætt
að fullyrða, að afskipti skólans og umhyggja fyrir hverjum ein-
stökurn nemanda hafi mjög vaxið við tilkomu Pálma í rektors-
embættið. Enn fremur var hætt að hafa kennara á verði í hliðar-
göngum niðri, en það fyrirkomulag gaf nemöndum oft kærkomið
tækifæri til ryskinga, sem þeir kölluðu „að gera bendu“. Yfirleitt
var alltof þröngt um nemendur í frímínútum í anddyri og á aðal-
gangi uppi, þegar veður bannaði útivist. Var þetta þannig fyrir
rektorstíð Pálma, en versnaði stórum, eftir að nemandatala tvö-
faldaðist.
Alls stjórnaði Pálmi Hannesson Menntaskólanum í 27 ár,
1929—1956. Var þetta tímabil viðburðaríkt bæði innanlands og
utan. Ymsir ytri atburðir gripu inn í dagleg störf Menntaskólans.
Eftir 1930 voru kreppuár og fjárframlög skorin rnjög við nögl.
A þeim árum tókst rektor þó að reisa skólasel Menntaskólans að
Reykjum í Ölfusi, þar sem nemöndum er ætlað að dveljast urn
helgar við íþróttir og útivist. Málið var tekið upp 1934/35, smíði
hófst 1937 og var lokið í aðalatriðum 1939. Var byggingin að
mestu reist fyrir gjafafé og með sjálfboðaliðsvinnu nemanda og
kennara. Má fullyrða, að þetta hali einkum unnizt fyrir vin-
sældir rektors og skólans sjálfs rneðal nemanda og aðstandanda
þeirra. Hið sama kom í ljós, er „Gamli skólagráni" gafst upp, þá
hlupu ýmsir vinir skólans undir bagga og lögðu frarn fé til þess
að kaupa nýjan og betri skólabíl. — Mun slíkt hafa verið óþekkt
1 sögu skólans fyrrum.
Árið 1937 var sett ný reglugerð fyrir Menntaskólann, gagn-
I i'æðadeild stytt úr 3 árum í 2, en lærdómsdeild lengd í 4 ár.
Eá var og tekin upp latínukennsla í stærðfræðideild. — Með
skóla- og fræðslulöggjöfinni 1946 var loks gagnfræðadeild við
skólann felld niður með öllu. Var það mjög gegn vilja Pálma
rektors.
Vorið 1940 tók brezki lierinn hús Menntaskólans hernámi
°g hafði þar yfirstjórn sína fram á sumarið 1942, er húsinu var
skilað. Á meðan varð kennsla að fara fram í Háskólanum og Al-