Andvari - 01.01.1957, Side 19
andvari
Pálmi Hannesson rektor
15
1 Reykjavík og Kaupmannahöfn. Stofnuðu þau heimili sitt á
Akureyri og áttu þar heima til haustsins 1929, er þau flytjast til
Reykjavíkur.
Pálrni undi vel hag sínum á Akureyri. Kennslan var honum
senr leikur, langt sumarleyfi og gott tækifæri til ferðalaga og
rannsókna.
RANNSÓKNAFERÐIR. DAGBÆKUR. Pálmi Hannes-
s°n notaði því nær hvert sumarleyfi sitt frá 1923 til 1949 til
rannsóknaferða á íslandi. Eru dagbækur geymdar frá flestum
ferðunum, og virðist mér ástæða til þess að geta þeirra stuttlega
í réttri tímaröð.
Sumarið 1922 fór Pálmi fyrstu rannsóknaför sína. Hann
f*yrjar ferð sína í Skorradal og heldur til Þingvalla með marga
hesta. Verður d\ölin á þeirn fræga stað næsta söguleg og skemmti-
^ega lýst í hreinritaðri daghók. Síöan mun Pálmi hafa haldið
álram norður Kjöl, en dagbók úr þeirri ferð virðist glötuð.
Arið eftir, 1923, fékk Pálrni styrk úr Danmerkurdeild sátt-
rnálasjóðs til rannsókna á hálendinu, og ákvað að ferðast um
Arnarvatnsheiöi, Kjöl og Eyvindarstaðaheiði. Tveir danskir jarð-
fræðinemar, Th. Biering-Pedersen og S. A. Andersen réðust til
ferðar með honum.
Síðar þetta sumar slóst hann í för með Guðmundi G. Bárðar-
syni menntaskólakennara til Oskju ásarnt Biering-Pedersen.
^un sú för hafa haft mikil áhrif á Pálrna og vakið fyrir alvöru
áhuga hans á jarðfræði íslands og sérstaklega eldfjöllum. Af
Oskju hefur hann ritað greinagóða lýsingu á glæsilegu máli.
Ehn þessar mundir eða fyrr kynntist Pálmi dönskum land-
ræðikandidat, Niels Nielsen, síðar prófessor í þeirri grein við
lainarháskóla. Nielsen var ótrauður til ferðalaga og laginn að
utvega farareyri. Hafði hann betri aðstöðu til að koma út rit-
gcrðum og meiri tíma til að skrifa þær heldur en Pálmi, sem
'ar nemandi. Er skemmst af því að segja, að Nielsen hefur að
'Uestu leyti einn skráð um ferðir þeirra og rannsóknir, þótt Pálmi