Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1957, Side 60

Andvari - 01.01.1957, Side 60
56 Þorkell Jóhannesson ANDVARI För Þorláks Ó. Johnsons á fund Tryggva og samningarnir við hann taka hér skarið af. Hér er um að ræða formlega staðfest- ingu á því, sem áður hafði á milli þeirra farið í bréfum, og mála- lokin verða þau, að Tiyggvi tryggir Þorláki fulla tölu þess fjár, sem umbjóðandi hans hafði samþykkt að láta kaupa hér á landi, allt að B000 fjár, eða þrefalt fleira fé en um virðist hafa verið rætt í fyrstu, enda hafa þá allir hreppar sýslunnar sameinazt um málið undir lorustu Tryggva. Sauðasalan til Bretlands haustið 1866 er í sjálfu sér svo ein- stæður atburður, að vert væri, að um liana væri ritað langt mál og ýtarlegt. Eigi verður það samt gert hér, að öðru en því er varðar Tryggva Gunnarsson sjálfan. Þess skal aðeins getið, að fjártökuskip það, sem taka átti land á Austfjörðum og í Húna- vatnssýslu að atbeina Eiríks Magnússonar og milligöngu Þorláks O. Johnsons, fór aldrei norður fyrir land en tók fullfermi eystra, rúmlega 2000 fjár. Skipið var illa úthúið til þessarar farar. Það hreppti óveður á leiðinni til Englands og fórst nær helmingur af fénu í þeim hrakningum. Er hörmulegt að lesa frásagnir um för þessa, en sjálfur hefir Eiríkur Magnússon lýst henni í bréfi til Jóns Sigurðssonar, sbr. Ævisögu Eiríks Magnússonar, eftir Stefán Einarsson, bls. 72—74. Urðu umbjóðendur Eiríks fyrir miklu tjóni af sauðakaupum þessum. Af Þorláki Ó. Johnson er aftur á móti það að segja, að er hann kom aftur til Englands úr íslandsför sinni frá því að semja við Tryggva, var kaupmaður sá, er í fyrstu hafði gert hann út til sauðakaupanna, hættur við allt saman. Þorláki tókst samt að fá annan mann til að ganga inn í sölusamningana. Var nú allt til reiðu, peningar fengnir og skip til flutninganna, en þá vildi svo illa til, að skipið strand- aði við Orkneyjar á leiðinni til íslands. Segir Eiríkur Magnússon, að þeir félagar hefði útvegað sér annað skip og ætlað að halda því til íslands, en þá liafi fregnir horizt af óförum þcirra Eiríks og varð ekkert úr þeirri för. Líklega er hér eitthvað málum Idandað, því þeir Eiríkur lögðu frá Eskifirði til Englands 4. október og hafa varla komið til Leith fyrri en um 10. okt., eða

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.