Andvari - 01.01.1951, Síða 33
andvari
Stefnt að höfundi Njálu
29
þeir Vigfús Gunnsteinsson og Snorri Sturluson og Eyrar-Snorri
1 Ljárskógum. Mæltu þeir saman vingan með sér, skyldi hver
þeirra veita öðrum, ef þyrfti á móti Hrafni. Þóttust þeir skilja,
að engi varð uppgangur þeirra, ef svo búið stæði ríki Hrafns“.
Leituðu þeir nafnarnir síðan liðveizlu Sturlu til atfarar við
Hrafn. Er þannig greint frá undirtektum Sturlu: „Það er satt
að eg hefi mjög latt þessarar ferðar jafnan hér til, en nú nenni
eg eigi við áeggjun ykkar að sitja heima, því að eg vissi, að þið
vilduð þó fara. En það er áhugi minn, að af þessari ferð hljótum
við mikinn ótíma, en engan framgang, ef svo fer sem mig varir“.
í samtökunum og ráðabrugginu gegn Hrafni eru með Snorra
Sturlusyni í fyrstu tveir frændur hans, Vigfús Gunnsteinsson
°g Snorri Pálsson. Þeir voru bræðrasynir. í ráðabrugginu og
sanitökunum með Höskuldi Þorvarðssyni gegn Eyjólfi halta eru
í fyrstu tveir frændur hans, Brandur Gunnsteinsson og Þorkell
Hallgilsson á Veisu. Þeir voru systkinasynir. Þegar þeir Höskuld-
ur ráðgast um andstöðuna við Eyjólf, segir Þorkell: „Hverja með-
ferð viljið þið hafa? Því að frændur okkar vilja allir með Eyjólfi
vera nema Hrafn“, — Þorkelsson frá Ljósavatni“. Þegar Ljár-
skógafundurinn var haldinn, gátu þeir Snorramir ekki vænzt
stuðnings nokkurra frænda sinna sem með völd fóm nema Vig-
fúss Gunnsteinssonar, svo vel sem það nú gafst. Kemur þetta mjög
greinilega fram í Sturlu þætti. Sturlu Þórðarsyni lízt það fá-
Slnna að eiga í ófriði við Hrafn. Einar Vatnsfirðingur er til nefnd-
Ur í liðsafnaði gegn feðgunum Snorra og Sturlu eftir hina mis-
'eppnuðu atför þeirra að Hrafni vorið 1263, og um afstöðu Guð-
nu,ndar Böðvarssonar er ekki heldur að villast. Hrafn „sendi orð
Guðmundi Böðvarssyni, að hann kæmi til móts við hann vestur
a Breiðafjörð, og hefði með sér af Snæfellsnesi skip þau er liann
fengi". Ummæli þ essi sýna að vorið 1263 hafa Hrafn og Guð-
tnundur verið bandamenn. Annars hefði Hrafni ekki komið
s ikt til hugar að Guðmundur tæki þátt í herför gegn Sturlu
oiðarsyni föðurbróður sínum, sem fyrir skemmstu hafði leitt
Vlgsmal Þorgils skarða bróður hans til farsællegra lykta.