Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1951, Page 39

Andvari - 01.01.1951, Page 39
andvari Stefnt að höfundi Njálu 35 höfundur láti öxarhyrnu Höskulds koma við bak Höfða-Odda uti í ánni, dettur honum ekki í hug sá sjálfsagði hlutur, að Veisu- menn reki flótta óvinanna yfir fljótið. Það er því líkast að fyrir söguhöfundi hafi vafizt minning um óreitt vatnsfall, sem hindr- aði atför og eftirreið. Og reyndar liggur það beint við, að hugsun um fljót sem illan farartálma hefir ekki getað verið höfundinum Ijarlæg, þegar hann greindi frá vafstri Ljósvetninga við ána. Frásögn þeirri fylgir sagan um liðsbón Höskulds við Þorvarð iöður sinn. í Sturlu þætti fylgjast einnig að frásagnirnar af liðs- t>ón Snorra við föður sinn, Sturlu á Staðarhóli, og tilraun þeirra til atfarar að Hrafni Oddssyni í Stafholti, sem strandaði hjá Norðurá, því áin var í vexti og reyndist óreið. Þegar þess er gætt, 111 a skilja hversvegna Fnjóská verður sú markalína, sem Ljós- vetningarnir frá Veisu komast ekki yfir í viðureign sinni við Eyjólf halta. Áhrif fyrirmyndarinnar á hugsanir höfundarins hafa skapað þessa markalínu, hvort sem honum hefir nú verið þetta lyllilega ljóst eða ekki. Svo sjálfgefið er getuleysi hinna sjötíu Eeisuriddara til atfarar yfir ána, að Eyjólfur er látinn dreifa S1nni fámennu sveit til féránsdóma, alveg eins og einskis ófriðar væri að vænta. Það er engin tilviljun, að einmitt hér í sögu minnist höf- undur í senn féránsdóma Hvamm-Sturlu að Staðarhóli, upphlaups Odda Ljósvetnings í Valahrísum og ránskapar biskupsmanna 1 Eeykjadal. Þessu veldur hin örlagaríka liðsbón á Staðarhóli. Höfundurinn er rétt áður búinn að greina frá járnburðarmáli Friðgerðar með járnburðarmál Ingveldar Þorgilsdóttur frá Staðar- hóli í huga og nú ætlar hann að fara að segja frá liðsbón Höskulds orvarðssonar. Fyrirmyndin er liðsbón Snorra Sturlusonar. Þeg- ar athygli höfundar beinist að Sturlu yngra Þórðarsyni á Staðar- 0h> rifjast upp sögnin um féránsdóma Sturlu eldra Þórðarsonar par á bæ í járnburðarmálinu. Óhjákvæmilega vakna þá upp fleiri ^oinningar bundnar við Staðarhól, því höfundur er að semja sogn um Ljósvetninga. Hallbera á Einarsstöðum, amma Ljós- vetningsins Odda skeiðkolls, var systir Ingveldar og Einars Þor-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.