Andvari - 01.01.1951, Qupperneq 8
4 Guðmundur Gíslason Hagalin andvari
en ýmsir líka með þeim ásetningi að leiða sjálfir sjálfa sig eða taka
þátt í sameiginlegum átökum, þjóðinni allri til aukinnar hagsældar.
Einstakir framtaksmenn hófust handa um skipakaup og bættar
aðferðir urn verkun og nýtingu fiskjar, aðrir liugðu á nýjungar
í búskaparháttum og mynduðu jafnvel með sér samtök, sem mið-
uðu að framförum í ræktun og vinnubrögðum, og á nokkrum
stöðum á landinu tóku menn höndum saman um endurbætur
á verzluninni. Þingeyingar stofnuðu menningarfélög og lands-
málasamtök og tóku að kynna sér erlendar stefnur í félagsmálum
og bókmenntum. Formælendur Ameríkuferða og andstæðingar
þeirra vógust á; í baráttunni fyrir auknu sjálfstæði þjóðarinnar
var haldið áfram, og meira umrót, meira andlegt vorveður var
hér í landi en nokkru sinni fyrr síðan á gullöld íslendinga.
Á þessurn tímum aukinna vona, framtaks og menningarvið-
leitni, þar sem uggur um landauðn var á öðru leitinu, mótuðust
þeir mörgu brautryðjendur, sem á öllum sviðurn íslenzks atvinnu-
og menningarlífs höfðu forystu um stórfelldar breytingar á fyrstu
þrem áratugum þessarar aldar og þokuðu þjóðinni lengra í fram-
faraátt á fjölmörgum sviðum en hún hafði áður komizt á þúsund
árum. Einn af bjartsýnustu, drenglyndustu og starfsömustu
mönnunum í þessu forystuliði var dr. Guðmundur Finnbogason.
Guðmundur Finnbogason íæddist að Arnstapa í Fjósavatns-
skarði í Suður-Þingeyjarsýslu hinn 6. júní 1873. Foreldrar hans
voru Finnbogi bóndi Finnbogason og kona hans, Guðrún Jóns-
dóttir, Jónssonar, bónda á Belgsá. Þau hjón voru gáfuð og bók-
hneigð, iðjusöm og með afbrigðum notinvirk. Þau höfðu lítið
bú og áttu stóran hóp barna, en komust samt af fyrir sig og
sína. Guðmundur Finnbogason segir í einni af ræðum sínum:
„Þau voru einyrkjar með stóran barnahóp á harðbalakoti
norður í Fjósavatnsskarði. Mér hefir alltaf fundizt það einhver
óskiljanlegasta gáta hagfræðinnar, hvernig þau gátu framfleytt
okkur hjálparlaust, svo lítil sem efnin voru. En þar var áreiðan-
lega farið vel með lítið."