Andvari - 01.01.1951, Blaðsíða 76
72
Barði Guðmundsson
ANDVARI
það, hvað veldur þessu iyrirbæri. Af iornaldarkonungum þeim,
sem Hróð-nöfn báru, voru þeir frændurnir Hróar Hálfdanarson
og Hrólfur kraki langmestir fyrirferðar í sögnum og kvæðum.
Urn Hrólf kraka segir Snorri Sturluson: „að hann var ágætastur
fomkonunga, fyrst af rnildi, fræknleik og lítillæti". í Beowulfs-
kvæðinu er Hróar hinn voldugi og ágæti Skjöldungakonungur.
Verður nú ljóst, hversvegna nöfnin Hróar — Hroðgeir og Hrólf-
ur einkenna Saurbæjarhreppana á landnámsöld. Orsökin er í
því fólgin, að þar á slóðum liafa setzt að menn, sem varðveittu
ævafornar ættarsagnir og höfðu Skjöldungakonungana í há-
vegum.
Þegar gaumur er gefinn að ætt Helgu í Saurbæ, má bein-
línis þreifa á þessu. Ætt hennar er rakin til Skjöldungakonungs-
ins Ingjalds Fróðasonar. Bróðir Helgu, Hróllur í Gnúpufelli,
er Helgason eins og nafni hans, Hrólfur kraki. Synir Hrólfs bera
sömu nöfn eins og Ingjaldur konungur og Böðvar hjarki höfuð-
hetja Hrólfs kraka. Þriðji bróðirinn hét Valþjófur, og er það
nafn hliðstætt kvenheitinu Wealþeow, en þannig nefnist drottn-
ing Hróars konungs í Bcowulfskvæðinu. Samkvæmt Danasögu
Saxos hét systir Flrólfs kraka, en kona Böðvars bjarka, Ruta.
Hefur Axel Olrik bent á það, að hér ræði um afbökun á kven-
mannsheitinu Hrút. Hliðstæða þess er karlmannsnafnið Hrútur.
Á íslandi finnst það aðeins í ættgrein, sem runnin er frá Þuríði
föðursystur I lelgu í Saurbæ og Flrólfs í Gnúpufelli.
Flrólfur Helgason í Gnúpufelli átti eina dóttur. Hún bjó í
Hleiðrargarði í Saurbæjarhreppi. Tveir hæir bera þetta heiti á
íslandi. Hinn er í landnámi Una hins danska, föður Hróars
Tungugoða. Faðir Una, sem telst vera ættaður frá Svíþjóð, á að
hafa átt jarðir á Sjálandi. Þegar þess svo er jafnframt gætt, að
þeir þrír menn aðrir en Hróar Tungugoði, sem bera nafnið Hróar
í Landnámabók, birtast þar allir í sagnatengslum við Skjöldunga-
ættina, má glöggt greina, hvaðan hið íslenzka Hróarsnafn se
runnið. Og sama máli gegnir urn bæjarheitið: Hleiðrargarð.
Þannig nefndu íslendingar jafnan hina frægu Hleiðm Skjöld-