Andvari - 01.01.1951, Blaðsíða 70
66
Barði Guðmimdsson
ANDVARI
vægara en tímatal. Hann vill auðkenna sig svo skýrt sem verða
mátti, án þess þó að gefa hinum svívirtu óvinum tækifæri til
málssóknar. Þetta hefir höfundi tekizt ágætlega, en að vísu með
því að víkja frá réttu tímatali og skerða nafnið Skeggbroddi. Ekki
aðeins heiti Brodda og Ketils eru jöfn að stafafjölda, heldur og
einnig föðumöfnin Bjarni og Ketill. Svo mikið er ekki við haft
í gervinafnavali Olkofra þáttar í nokluu öðru tilfelli. Það skyldi
enginn ganga þess dulinn, að ummæli Brodda Bjarnasonar við
goðana sex væm orðsendingar frá Katli í Efstadal til höfðingj-
anna sex. Þannig fékk hann bezt notið hefndarinnar og um leið
létt á sér farg ættlerakenndar sinnar, hinn tiginborni maður,
sem kallaðist í eigin riti „göfuglegri að sjá en aðrir menn“.
HEIMILDASKRÁ.
1) íslenzk fornrit Rvík 1950, XI bindi, bls. 90.
2) Islandske Annaler indtil 1578, Chria 1888, bls. 138.
3) Sturlunga saga Rvík 1946, I bd., bls. 507.
4) Sama rit II. bd., bls. 203.
5) Diplomatarium Islandicum II bd., bls. 125.
6) Biskupasögur Kbh. 1858, I bd., bls. 705.
7) Sama rit bls. 715—16.
8) Sama rit bls. 706.
9) Sama rit bls. 707.
10) Sama rit bls. 705.
11) Sama rit bls. 725.
12) Sama rit bls. 697.
13) Sturiunga saga II, bls. 213—14.
14) Sama rit bls. 202.