Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1951, Side 69

Andvari - 01.01.1951, Side 69
ANDVATtl Gervinöfn í Ölkofra þætti 65 þeir við svo búið, og spurðust þessi orð um allt þingið". Hér birtist greinilega sá óslcadraumur, að bið eitraða illmæli um Þorvarð komist í hámæli og berist út landshornanna á milli. Næst hrak- legast atyrtur er Ásgrímur sýslumaður í Árnesþingi, sem tók við fjárkröfumálinu af Þorvarði Þórarinssyni, og þá Sturla lögmaður, er hafði fengið sér dæmt Hítdælagoðorð. Þegar þess er svo gætt, að þátturinn er í senn mótaður af hugsunum um skuldaskilamál Ketils í Efstadal og valdastreitu Sturlu og Hrafns Oddssonar tveim áratugum fyrr, sem mjög hefir þá hlotið að snerta framtíðar- vonir Ketils, er bágt að hugsa sér, að nokkur annar maður en hann hafi skrifað Ölkofra þátt. Með munni Brodda Bjarnasonar mælir höfundur til höfð- mgjanna sex og lætur þá vita, hvers virði þeir séu. Hrafn og Erlendur sleppa með meiðyrði, sem í raun og veru mega metast sem markleysuhjal, þótt ekki vanti illkvittnina. En vinsemd við frænda sinn Sighvat Hálfdanarson vill höfundur halda, sem Eroddi við frænda sinn Þorkel Geitisson. Þess vegna notar hann kér tækifærið að láta í einu tilfelli af sex ádeilu Brodda snúast um efni, sem heimfæra mátti til sögualdar. Sínum eigin verð- leikum gleymir höfundur ekki með öllu og lætur Ölkofra segja við Brodda: „Bæði er, að þú ert göfuglegri að sjá en aðrir menn, euda áttu til þ ess varið”. Hrósið um yfirbragð og innræti sakaði kér ekki, því Ölkofri kemur einnig fram sem hinn mesti skrum- ari um Skafta og Guðmund ríka í samtali við þá. Sá er þó inunurinn, að ekki verður séð, hvort Ölkofri mæli við Brodda af neilindum. En við goðana talar hann augljóslega af hreinu falsi °g yfirdrepsskap. Áfleit tímatalsskekkja er í Ölkofra þætti, þar sem Broddi Bjarna- er látinn eiga í útistöðum við Eyjólf gráa og Þorkel Rauða- jarnai'son. Það er þó ekki hægt að gera ráð fyrir því, að hún sé ^prottin af vanþekkingu þáttarhöfundar. Hefði óneitanlega átt ^ctur við, að höfundur brygði sér í húning Bjarna Brodd-Helga- s°nar föður Brodda og atyrti síðan höfðingjana þannig til fara. n hér kom annað sjónarmið til greina, sem var höfundi mikil-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.