Andvari - 01.01.1951, Síða 92
88
Mannrétindayíirlýsing Sameinuðu þjóðanna
ANDVARl
2. grein.
1) Hver maður skal eiga kröfu á réttindum þeim og því
frjálsræði, sem fólgin eru í yfirlýsingu þessari, og skal þar engan
greinarmun gera vegna kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu,
trúar, stjórnmálaskoðana eða annarra skoðana, þjóðemis, upp-
mna, eigna, ætternis eða annarra aðstæðna.
2) Eigi má heldur gera greinarmun á mönnum fyrir sakir
stjórnskipulags lands þeirra eða landsvæðis, þjóðréttarstöðu þess
eða lögsögu yfir því, hvort sem landið er sjálfstætt ríki, umráða-
svæði, sjálfstjórnarlaust eða á annan hátt háð takmörkunum á
fullveldi sínu.
3. grein.
Allir menn eiga rétt til lífs, frelsis og mannhelgi.
4. grein.
Engan mann skal hneppa í þrældóm né nauðungarvinnu.
Þrælahald og þrælaverzlun, hverju nafni sem nefnist, skulu
bönnuð.
5. grein.
Enginn maður skal sæta pyndingum, grimmilegri, ómannlegri
eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.
, 6. grein.
Allir menn skulu, hvar í heimi sem er, eiga kröfu á að vera
viðurkenndir aðilar að lögum.
7. grein.
Allir menn skulu jafnir fyrir lögunum og eiga rétt á jafnri
vernd þeirra, án manngreinarálits. Ber öllum mönnum réttur
til verndar gegn hvers konar misrétti, sem í bága brýtur við yfir-
lýsingu þessa, svo og gegn hvers konar áróðri, er miðar til þess
að skapa slíkt misrétti.