Andvari - 01.01.1926, Síða 66
64
Um skólafyrirkomulag í nokkrum löndum
Andvari
heimilismenn matast, og sameiginleg stór dagstofa, þar
sem nemendur skemta sjer við lestur blaða eða bóka,
tafl og hljóðfæraslátt í tómstundum sínum. Þeir lesa náms-
greinir venjulega 2—3 saman í herbergi og er það her-
bergi líka svefnherbergi þeirra. — Þótti mjer það merki-
legt, að ekki bar á neinum misfellum, stórum eða smá-
um, þann tíma sem jeg var á heimilinu, og bar þó
sáralítið á nokkru eftirliti af hálfu yfirmanna, en eftirlit
nemenda sjálfra, og þá einkum trúnaðarmannsins, var
svo kyrlátt og hljótt, að þess varð lítið vart, og er þó
vafalaust ekki lítils 'virði.
Sameiginlegt eldhús er fyrir öll heimilin og því ná-
kvæmlega sami matur etinn á þeim öllum í hvert sinn.
Aldrei hef jeg sjeð óbrotnari lifnaðarhætti og virtust þó
nemendur bæði una þeim vel og þroskast og dafna.
Sjerstakt sjúkrahús hefur skólinn og baðhús, og hvort-
tveggja prýðilegt. Enn fremur ágætan íþróttavöll og öll
nauðsynleg íþróttaáhöld.
Störfum er svo hagað, að nemendur eru vaktir kl.
6,45 og drekka þeir kókó kl. 7,10. Kenslustundir eru
frá 7,50—10,25; þá er etinn morgunverður. Síðan er
aftur kent frá 11,25—2 eða 2,50, en nokkru skemur á
miðvikudögum og laugardögum; þá er kenslu lokið kl.
rúmlega 1. Undirbúningur undir næsta dag fer fram frá
kl. 5,30—6,20, eða í lengsta lagi til kl. 7 í neðri bekkj-
unum, en frá 5,30 og að minsta kosti til kl. 7 í efri bekkj-
unum. A þessum tíma má enginn nemandi heimsækja
annan. Kl. 9 hátta yngstu nemendur, kl. 10 hinir eldri,
en á vorin er þó háttutími nokkru seinna.
Ekki er vistin ódýr í skóla þessum. Nemendur í 2.
(neðsta) bekk greiddu síðasta ár kr. 2600, í 3.-5. bekk
kr. 2800 og í 6.—9. bekk kr. 3000.
Hvergi minnist jeg að hafa sjeð annað eins mannval