Andvari - 01.01.1926, Page 81
Andvari
íslendingar mæidir
79
blóðflokka 800 manna árið 1922 og ritaði um þá í
Læknablaðinu.
Um rannsóknir mínar er það að segja, að á árunum
1920—23 mældi jeg alls rúmt þúsund karla. Af þeim
voru 844 á aldrinum 20—40 ára og svara þeir nokk-
urnveginn til fullorðinna manna. Af þeim voru aftur 233
20—23 ára, en sá aldur svarar til nýliðaaldurs erlendis.
]eg tók 40-*50 mál af hverjum manni, sem öll mál
voru tekin af, og voru þeir mældir og vegnir berir.
Ekki allfáir voru mældir í fötum og tóku aðeins af sjer
skóna, en þá varð jeg að láta mjer nægja með miklu
færri mál. Sjaldan eru svo mörg mál tekin eins og jeg
gerði, og má segja að mörg þeirra sjeu tiltölulega þýð-
ingarlítil, en hins vegar auka mörg mál vinnuna stór-
kostlega. Mjer þótti það þó rjettast, úr því mannfræði
íslendinga var að mestu leyti ókunn, því að á annan
hátt var ekki unnt að fá víðtækt yfirlit yfir alla líkams-
byggingu þeirra.
Það var að sjálfsögðu erfitt að tryggja sjer, að menn
þeir, sem mældir voru, væru upp og ofan og svöruðu
sæmilega til meðaltalsins í landinu. ]eg átti auðveldastan
aðgang að nemendum á ýmsum skólum í Reykjavík, og
þeir voru víðsvegar að. Mældi jeg þá alla, sem komnir
voru yfir tvítugt og ekki voru fatlaðir að einhverju leyti.
Þá mældi jeg flesta kennara háskólans, alþingismenn,
allmarga áheyrendur Alþingis, en að lokum leitaði jeg
uppi menn á götunum í Reykjavík og fylgdi þá þeirri
reglu, að taka þann fyrsta, sem jeg mætti og fáanlegur
var til þess að láta mæla sig. Tóku nalega allir vel í
það, er þeir heyrðu í hverjum tilgangi það væri gert.
Þó var ekki laust við, að sumir hjeldu, að jeg hefði
»lausa skrúfu« og væri ekki sjálfrátt með þetta mæl-
ingafár.