Andvari - 01.01.1926, Page 127
Andvari
Ferð til Vatnajökuls og Hofsjökuls
125
norður-landnorður. Eins og sést af uppdrættinum, er það
alveg umgirt jökli, eins og Nunatak í Grænlandsísum.
Vötnin nefndi eg »Gunnlaugsvatn« og »Sigríðarvatn«.
Milli Úlfaldans og Ljónsins gekk skriðjökull niður í
Gunnlaugsvatn, og flutu um í vatninu ísstykki frá niður-
burði hans (sjá 5. mynd).
Breiður aurás lá í milli vatnanna. Eftir honum gengum
við í landsuður yfir
á jökulinn; stigum
við fótum okkar á
hann kl. 2,55. Hing-
að til höfðum við
hvílzt tvisvar-þrisvar,
stutta stund, 5 —10
mín. í hvert sinn;
samt afréðum við
að halda áfram og
hvílast ekki fyrr en
við rætur Ljónsins.
En fjarlægð og upp-
ganga brást okkur
svo, að það, sem
við ætluðum vera
einnar stundar leið,
revndist tveggja
stunda, og eg varð
vegna lasleika, sem
leið hjá, að leggjast
i fönnina um 10 mínútna bil. Kl. 4,40 komumst við að
útsuðurhorni Ljónsins (970 m. yfir sjávarflöt) og hálfri
stundu síðar landsuðurhorninu (1010 m.). Hér hvíldumst
við hálfa stund, snæddum og lögðum okkur til svefns.
Sólskin var og bjart í lopti, svo að við höfðum dýrlegt
7. „Ljóniö“ að vestan. Fremst er jökul-
hlíðin með miklum rákum eftir leysingar-
vatn í fjölda afrennsla.