Vikan


Vikan - 07.12.1967, Síða 17

Vikan - 07.12.1967, Síða 17
„Konan meö lampann“: Florence Nightingale hugar að særöum og sjúkum hermönnum í Skútarí-spít- ala. Á 16. síðu er hluti úr samtímateikningu af áhlaupi léttu brígöðunnar við Balaklava. „ . . . hlakkar sem gaukur hcima á skjánum, húrr- r.r og drekkur brennivín“. — að skjóta og stinga hver annan og fóru þess í stað að syngja Heims um ból. Þessu héldu þeir áfram í fullu bróðerni frá að- fangadagskvöldi til jóladagsmorguns, en þá áttuðu þeir sig á ný á alvöru lífsins og byrj- uðu aftur að skjóta, skera og sprengja. En ekki hafa slík kraftaverk skeð allar jólanætur. Upp á eina þeirra var að sögn meira að segja haldið með rifrildi og slags- málum á sjálfum fæðingarstað Frelsarans í Betlehem — og þeir sem rufu jólagriðin á þessum helgasta slað gervallrar kristninnar voru ekki beinlínis neinir rónar, heldur virðulegir, síðskeggjaðir klerkar í fullum messuskrúða. Og endaslepp urðu illindin ekki, því þau enduðu um síðir með ógeðslegri styrjöld, sem ein fimm riki áttu hlut að og kostaði tugi eða hundruð þúsunda manna líf og heilsu. Þetta var Krímstríðið, sem Bretar, Frakkar, Sardiníumenn og Tyrkir háðu gegn Rússum árin 1853—56. ILLINDI ÚT AF HELGISTÖÐUM. Aðdragandi þessara óskapa var togstreita rómversk-kaþólsku kjirkjunnar og þeirrar grísk-orþódoxu um ráðin yfir helgistöð- um Palestínu. Kaþólikkar höfðu staðið fyrir krossferðunum forðum tíð og síðan höfðu þeirra klerkar lengstum setið að þessum helg- ustu dómum kristninnar. En síðar veitti Tyrkjasoldán, sem þá hafði eignazt landið helga, hinum orþódoxu keppinautum þeirra helgistaðina í Jerúsalem og Betlehem. Við það sat framundir miðja síðustu öld, er Napóleon þriðji Bónaparte, bróðursonur Napóleons mikla og söguhetja Heljarslóðar- orrustu, varð keisari í Frakklandi. Honum var mikið í mun að auka veg Frakka á al- þjóðavettvangi og þá ekki síður dýrð sjálfs sín, sem var ekki of mikil í augum flestra annarra þjóðhöfðingja Evrópu, er litu á Bóna- partana eins og hverja aðra ótínda og ætt- lausa uppskafninga. Honum tókst með dipló- matískum brögðum og þvingunum að fá soldáninn til að veita kaþólikkum á ný um- sjá með Fæðingarkirkjunni í Betlehem. Þetta allt saman olli miklum urg meðal klerkdóms þess, sem hjarði umhverfis dýrð- arstaði Landsins helga, og samkvæmt einni frásögn kvað meira að segja svo rammt að, að á eina jólanóttina flugust vígðir þjónar tveggja af höfuðkirkjudeildum heims á við dyr þess musteris sjálfs, er vígt var burði þess friðarhöfðingja, sem einn manna hefur náð að gefa meðbræðrum sína nótt svo náð- uga að lamb hafi leikið við Ijón. SARINN t VfGAHUG. En fleirum gramdist þessi tilskipun sol- dáns en orþódoxum klerkum Palestínu, og var þeirra mestur bógur sarinn í Rússlandi, Nikulás fyrsti. Hann hafði þá setið alllengi að völdum og getið sér orð fyrir að vera einhver mestur og afturhaldssamastur harð- stjóri af síðari keisurum Rússa. Allt frá tím- um Péturs mikla höfðu þjóðhöfðingjar þeirra leitast við að tileinka þjóð sinni menningu Vestur-Evrópu, að vissu marki að minnsta kosti, en Nikulás tók þveröfuga stefnu. Þeir straumar frjálslyndis og framfara, sem grass- érað höfðu vestur í álfunni frá því franska stjórnarbyltingin var gerð, voru eitur í hans beinum, enda tók hann duglega í hnakka- drambið á hverjum þeim, er dirfðist að æmta eða skræmta um slíkt í hans ríki. Á þessu tímabili voru uppi mörg beztu skáld Rússa og fengu sum þeirra óþyrmilega á þessu að kenna, til dæmis Púskin og Túrgenéf. Þó var mildilega að þeim gengið ef tek- in er til samanburðar sú meðferð, sem ráð- endur Rússaveldis á síðustu áratugum hafa látið skáldmenni sín sæta. Þegar Nikulás var upp á sitt bezta, bar hann ægishjálm yfir alla aðra þjóðhöfðingja á meginlandi Evrópu. Hann kæfði uppreisn Pólverja í blóði og hjálpaði Austurríkismönn- um dyggilega til að fara eins að við Ung- verja. Var honum mjög i mun að hafðar væru í heiðri meginreglur „helga banda- lagsins“ svo kallaða, er þjóðhöfðingjar Ev- rópu stofnuðu með sér að Napóleoni mikla sigruðum og hafði að markmiði að halda öllu í þeim skorðum, sem gilt höfðu fyrir frönsku stjórnarbyltinguna. Eina undantekningin á þessari stefnu Niku- lásar var afstaða hans til Tyrkja. Frá fornu fari hafði það verið eitt mesta áhugamál allra rússneskra stjórnenda að lama þennan erfðaóvin sem mest, og lokatakmarkið i þeirri viðleitni var að ná undir rússnesk yfirráð fstanbúl — hinum fornhelga Miklagarði grískra keisara og grísk-orþódoxrar kristni, borginni, sem í augum orþódoxra var ekki síður heilög en Róm í augum kaþólikka. Þar með hlyti að fylgja vald yfir tyrknesku sundunum, er yrðu rússneska flotanum opin leið út á Miðjarðarhaf. Þar eð Nikulás taldi sig sjálfkjörinn vemd- ara allra orþódoxra manna í ríki Tyrkja- soldáns, gat hann ekki liðið nefnt tiltæki hins síðarnefnda, sízt úr því að það var framið samkvæmt tilmælum Napóleons þriðja, sem sarinn fyrirleit hjartanlega. Að vísu var harðstjórinn gamli nú kominn að fótum fram af elli og sjúkleika, en engu að síður vildi hann ekki láta þetta tækifæri úr greipum ganga til að hagnast rækilega á kostnað Tyrkja, enda óvist hvort annað jafn- Framhald á bls. 84 VIKAN-JÓLABLAÐ 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.