Vikan


Vikan - 07.12.1967, Page 27

Vikan - 07.12.1967, Page 27
 Nevada sem þýðir Snæfjöll, mig minnir 3400 m hár. Hann er á Suður-Spáni. Samgöngur hafa löngum verið litlar, og hver maður segir eitthvað líkt og Svarfdælingurinn sem kvaðst bæði vera utanlands og innan, þeim finnst þeir heyra til sínum gömlu hertoga- dæmum sem hefur verið slengt sam- an með giftingu fyrir mörgum öldum. Már- ar voru reknir frá Spáni eftir að Isabella konungsdóttir af Kastilíu hafði verið gefin Ferdinand konungssyni af Aragon. Þarna var komin samsteypa ríkja sem varð upphaf hins spænska alríkis, en flest héldu hin smáu ríki landsrétlindum sínum og settu skilyrði, alveg eins og við þegar við lofuðum Hákoni gamla skatti af íslandi. Síðan hefur stjórnin í Madrid alltaf verið að reyna að búa til eitl ríki úr Spáni, en hin fornu ríki staðið fast á sínum rétti. Katalónía hefur fjórar milljónir íbúa sem tala sérstakt mál, álíka fjarlægt spænsku og danska er frá þýzku. Katalóníumenn eru taldir duglegastir Spánverja, hafa mest verks- vit og ekki síður mest iðnaðarvit. Fyrstir allra Spánverja komu þeir sér upp iðnaði svo að þar er þéttbýli og stórar verksmiðj- ur. Ég var viðstaddur tvær uppreisnir í Katalóníu og sú seinni endaði með því að landsstjórinn var dæmdur í fimmtán ára tugthús, aumingja maðurinn. í þeirri uppreisn var beitt hernaðaraðferð sem vert er að geta um, en það er eiginlega hernaðarleyndarmál sem ég held samt að ég verði að ljóstra upp. Yfirhershöfðinginn í Katalóníu var hollur stjórninni í Madrid og vildi bæla niður uppreisnina. Þegar Katalón- íustjórn var búin að gefa út sjálfstæðisyfir- lýsinguna beið hann til kvölds, en hóf mikla skothríð úr fallbyssum þegar dimmt var orðið svo að hinar þröngu götur Barcelona endurómuðu af sprengingum. En þetta voru bara púðurskot. Rúður brotnuðu í mið- borginni og fólki varð ekki svefnsamt. Svo færði hann kanónurnar smátt og smátt nær stjórnarsetrinu og þinghúsinu og um þrjú leytið um nóttina var hann kominn alveg þangað. Hlemmaði hann þá inn um glugga á þinghúsinu, og urðu stjórnarherramir þá svo skelkaðir að þeir gáfust upp. Allir héldu í fyrstu að þarna hefði orðið óskaplegur bar- dagi, og hershöfðinginn sigraði eftir vasklega vörn. En þetta var allt tómur misskilningur, þetta var bara skothríð út í loftið, brella sem hershöfðingjanum tókst að beita við upp- reisnarmenn, enda urðu sára litlar skemmdir og enginn maður féll. — Þú lærðir Katalónsku, var það ekki? — Jú, ég mátti til að læra hana. Ég þurfti oft að fá áheyrn á stjórnarskrifstofunum og fylla út ýmsar skýrslur sem voru á kata- lónsku. Það kom mér að góðu haldi í borgara- styrjöldinni nokkrum árum seinna, því þá gat ég rætt við menn sem ekki kunnu orð í spænsku. — Er það satt að spænska sé auðvelt mál íyrir íslendinga? — Já, ég tel það. f spænsku eru engin hljóð sem íslendingum þykir vont að bera fram. Málfræðin er tiltölulega auðveld, nema hvað óreglulegar sagnir eru óteljandi. En það er oft hægt að sleppa óreglulegri sögn og nota í staðinn aðra sögn reglulega. Spænska var víst jafnan kennd þannig að mest kapp var lagt á óreglulegar sagnir, og þannig má segja að hún sé erfitt mál. Það voru víst miklir málfræðingar sem sömdu kennslubækurnar, en hirtu ekki um að fara einföldustu leiðina. Ég var svo heppinn að geta notfært mér nýtt kerfi, þar sem manni var kennt að láta sér nægja fáeinar óregluleg- ar sagnir, unz maður var vel kominn niður í málinu. Þá var aftur tekið til við sagnirnar. f London er málastofnun sem kallast Hugo- málastofnunin. Hún gefur út ódýrar kennslu- bækur og hagar starfi sínu þannig að maður eigi að geta lært af sjálfum sér að tala er- lent tungumál á þremur mánuðum. Ég færði mér í nyt þetta kerfi á Spáni og gekk vel. Síðan hef ég notað sömu aðferð annars stað- ar þar sem ég hef þurft að komast niður í framandi tungu og alls staðar getað bjargað mér. Jafnvel rússnesku lærði ég dálítið mér til mikils gagns. — Gerðist eitthvað skemmtilegt sem þú vilt segja frá? — Um þetta leyti komu margir fslending- ar til Spánar, bæði ferðamenn til að njóta hins fagra landslags og hinna stórkostlegu listaverka sem svo mikið er til af á Spáni. Jónas frá Hriflu og kona hans dvöldust hjá okkur í nokkrar vikur, og Halldór Laxness bjó einnig í Barcelona um skeið. Hann var að ljúka við eina af bókum sínum í næði. Var mikið ánægjuefni að komu þeirra. Svo komu margir verzlunarmenn vegna þess að auðveldast var að fá leyfi fyrir vefn- aðarvöru frá Spáni á þessum árum. Og auð- vitað voru komur íslenzkra skipa tíðar með saltfiskinn. Ég hitti því oft landa mína og naut mjög samvistanna við sjómennina. Þarna bar að garði ungan mann frá góðri fjölskyldu í Reykjavik sem tók að lifa þarna hálfgerðu rónalífi. Ég læt liggja á milli hluta hver maðurinn er. Hann forðaðist mig eins og skiljanlegt var, en ég náði í skottið á honum einu sinni og spurði hann hvort hann vildi ekki fá sér eitthvað að gera ellegar fara heim, því að ekki gæti hann lifað þarna Framhald á bls. 69. VIKAN-JÓLABLAÐ 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.