Vikan - 07.12.1967, Qupperneq 37
í skoðanakönnun um vinsæluslu hljómsveitir og söngvara, sem
nýlega íór fram í Bretlandi, kom í Ijós, sem raunar vænta mátti,
að Bítlai-nir eru enn vinsælasta hljómsveit þar í landi. Bítlarnir
eiga þó „skæðan“ keppinaut, þar sem hljómsveitin Procol Harum
er, en þessi hljómsveit átti vinsælasta lagið, sem út kom á árinu
— „A whiter shade of pale“. í skoðanakönnuninni kom líka í
ljós, að Procol Harum er sú hljómsveit, sem vænta má, að mest
láti að sér kvaða á árinu 1968. Hljómsveitin sendi frá sér í
septemberlok lagið „Homburg" og hefur það einnig fengið feikna-
lega góðar viðtökur, en lagið sömdu Keilh Reid og Gary Brooker,
höfundar „Whiter Shade“.
Næstir Bítlunum að vinsældum koma The Rolling Stones, og
þykir mörgum harla athyglisvert, að þeir skuli enn halda velli,
því að eins og kunnugt er hafa þeir ekki getið sér góðan orðstír
á árinu og ekki sent frá sér ýkja margar plölur. Ef miðað er
við vinsældir hljómsveita í Bretlandi og Bandaríkjunum eru
Bítlarnir númer eitt, Beach Boys í öðru sæti, Monkees í þriðja
sæti og Rollingarnir númer fjögur í röðinni.
IHE FLOWERPOT ME!N
Þessir náungar nefna sig „The
Flowerpot Men“, en ekki alls
fyrir löngu sendu þeir frá sér
lagið „Let‘s go til San Fran-
sisco“, sem komst á vinsælda-
listann brezka og hefur einnig
náð vinsældum hérlendis. Þetta
var fyrsta plata hljómsveitar-
innar. en liðsmenn hennar eru
þó síður en svo nýgræðingar.
Tveir þeirra sungu áður með
söngflokknum The Ivy League,
sem sendi frá sér margar ágæt-
ar plötur fyrir nokkrum árum.
Álitið er, að The Flowerpot
Men eigi eftir að láta talsvert
að sér kveða í nánustu framtíö.
Beztu Dliturnar
Bezta tveggja laga hljómplata ársins var kjörin
„Whiter Shade Of Pale“, flutt af Procol Harum
en í öðru og þriðja sæti var Bítlaplatan með
lögin „Strawberry Fields Forever“ og „Penny
Lane“. Númer fjögur var lag Jimi Hendrix „Hey
Joe“, Kinks voru í fimmta sæti með „Waterloo
Sunset“ og hljómsveitin Traffic númer sex með
lagið „Paper Sun“.
Bezta hæggenga hljómplatan var kjörin „Sgt.
Peppers“ plata Bítlanna, og kom það fáum á
óvart. í öðru sæti var ,,Are you Experienced“
með hljómsveit Jimi Hendrix og númer þrjú
voru Walker Brothers með plötu sína, „Images“.
ílk 1.
BITLARNIR
1UINSÆLASTIR
0 Charlie Watts, trommuleikari
Rollinganna, en þeir eru næst
vinsælasta hljómsveitin í Bret-
landi.
<< Bítlarnir halda enn velli.
Procal Harum — sú hljómsveit,
sem mest kom á óvart 1967.
O
VIIvAN-JÓLABLAÐ 37