Vikan - 07.12.1967, Síða 59
raspsteiktar kótilettur. Þá þarf aðeins
að snúa þeim í hveiti, eftir að búið er
að berja þær og salta, og steikja síð-
an. Það er mjög til bragðbætis að opna
litla dós a£ sveppum og saxa þá, síðan
brúna á pönnu og sjóða 1 glas af
rauðvíni með sveppunum 1 3—5 mín-
útur á pönnunni og hella yfir kótilett-
urnar, rétt áður en þær eru bornar á
borð.
Með öllu fersku svínakjöti er sjálf-
sagt að bera rauðkál, grænar baunir
og sykurbrúnuð jarðepli, ásamt súru
og sætu grænmeti.
SVÍNALÆRI (eða bógur)
Mynd.
Steikingartími Z\'2 klst.
2y2 kg. svínabógur. Verð pr. kg. kr.
225.00 — verð alls kr. 562.50
2 tsk. salt
pipar á hnífsoddi,
2 stk. lárviðarlauf
4 stk. negulnaglar
Vatn
Sósan:
Soðið af steikinni
1 epli skorið smátt
2 negulnaglar
salt og pipar
hveitijafningur
Krydd og lögun sósu: Verð ca. kr.
20.00.
Paran er skafin og skorin í þunnar
ræmur með beittum hníf. Salti og pipar
er nuddað í pöruna, lárviðarlaufi og
negulnöglum er stungið í fituna milli
ræmanna. Steikin er svo sett í heitan
ofn (250—300°) og látin verða ljós-
brún. Þekið steikina með alúmínpapp-
ír, hellið 1 ltr. vatni í pönnuna og
látið steikina vera 2y2 klst. í ofninum,
bætið vatni á pönnuna meðan á steik-
ingu stendur, svo hún verði aldrei
þurr. Síðustu 10 mínúturnar af steik-
ingartímanum þarf að fjarlægja málm-
pappírinn og láta pöruna harðna.
Svínakjöt þarf ætíð að vera vel steikt.
Stingið með prjóni gegnum kjötið og
steikið smástund áfram, eða þangað
til ekkert blóð kemur úr sári eftir
prjóninn. Sykurbrúnuð jarðepli, rauð-
kál, soðin epli, sveskjur og grænmeti
ásamt góðri sultu er sjálfsagt að bera
með svínasteik.
Lögun sósu.
Þegar steikin er tekin af ofnpönnu,
skal hella heitu vatni á pönnuna, svo
allt soðið fáist, en það síðan sigtaö í
pott. (Fitu þarf að ná ofan af soðinu,
og er það auðvelt með því að hella
2—3 dropum af sósulit í soðið. Þar
sem fitan tekur ekki 1 sig litinn, sést
hún vel og er auðvelt að fleyta hana
af með matskeið). Epli og negulnöglum
er bætt í ásamt salti og pipar eftir
smekk húsmóður og látið sjóða í
nokkrar mínútur. Síðan er soðið jafn-
að með hveitijafningi og meiri sósu-
lit bætt í, eða þar til fallegur brúnn
litur hefur fengizt. Svo ræður hús-
móðir sjálf, hvort hún sigtar sósuna
eða ekki, ef sósan er sigtuð, merjið
þá eplin með skeið gegnum sigtið.
SVÍNASTEIK - AFGANGAR
AfgangssneiSar af svínabógi.
Sósuafgangur
i/2 dós niðursoðnir tómatar
i,4 dós skornir sveppir
3 stk. epli
Salt, paprika, sykur
Verð ca. kr. 85.
Auk þess: Grænar baunir, frönsk
jarðepli, agúrkusalat (frystar agúrk-
ur).
Opnið dósirnar og sigtið vökvann af
ofan i pott með sósuafgöngum. Hitið
sósuna, bragðbætið með salti og góðri
soyu, gjarnan Kínasoyu. Smyrjið eld-
fast leirfat, raðið afgangskjötsneiðum
i fatið. Skerið tómata i tvennt og rað-
ið þeim hjá kjöti. Sósu hellt yfir kjöt
og tómata, sveppum stráð þar ofan
á, eplin afhýdd og skorin í 8 stk.
hvert, sem svo eru lögð ofan á sósu
og sveppi, stráð yfir nokkrum korn-
um af sykri, og síðan ögn af papriku.
Setjið siðan í heitan ofn og látið Ijós-
brúnast. Berið á borð sjóðandi heitt
ásamt grænujm baunum, frönskum
jarðeplum og agúrkusalati.
SVÍNAHRYGGUR
Mynd.
Steikingartími ca. 1% klst.
Þegar húsmóðir kaupir svínahrygg
í jólamatinn, þá kaupir hún það bezta
og jafnframt það dýrasta. En úr svína-
hrygg er hægt að matbúa fleiri og
betri hátíðarmáltíðir en öðru kjöti,
hvort sem steikt er í ofni, potti eöa
sem kótilettur. Krydd, svo sem dill,
engifer, paprika, karrý, lárviðarlauf,
merian, negull, eru hvert um sig mjög
gott með réttum úr svínahrygg.
2 kg. svínahryggur, verð pr. kg. kr.
240.00 — alls kr. 480.00 Stráið salti á
hrygginn og smávegis engiferdufti.
Steikið í heitum ofni þar til fitan er
ljósbrún. Hellið Vx Itr. vatni yfir hrygg-
inn, stráið einni matarskeið af sykri
yfir hrygginn og látið stikna áfram í
um klukkustund. Bætið vatni á eftir
þörfum, svo nógur kraftur fáist i sósu.
Hellið soðinu í pott og jafnið með
hveitijafningi, bragðbætið með salti
og dekkið með sósulit. Þessari sömu
sósu má svo aftur breyta eftir vild,
með því að bæta tómatsósu og rjóma
í eða saxa tvö afhýdd epli — og
setja í sósuna, eða hálfan dl. þeyttan
rjóma og safa úr einni appelsínu.
Sósa með tómat og rjóma: Verð ca.
kr. 30.00.
Þegar steikt cr í potti skal smjör-
líki ljósbrúnað og hryggurinn brún-
aður og bætt svo vatni upp á miðjan
hrygginn. Það þarf að snúa kjötinu og
steikingartíminn styttist um 15 mínút-
ur frá ofnsteikingu.
SVÍNAHRYGGUR —
AFGANGAR
Mynd.
Afgangssneiðar af svínahrygg
25 gr. smjörlíki
Salt —pipar
Vz dós ferskjur
200 gr. mayonnaise
2 tsk. karrý
2 eggjahvítur
V2 dós grænar baunir
Verð ca. kr. 105.00.
Smyrjið eldfast leirfat. Látið renna
af grænu baununum, hellið þeim í
leirfatið, raðið kjötsneiðum ofan á
baunirnar. Látið alla vætu renna af
ferskjunum og látið þær síðan ofan á
kjötið. Stífþeytið eggjahvíturnar, hrær-
ið karry saman við mayonnaise og
síðast skulu eggjahvíturnar hrærast
varlega við mayonnaisið. Látið síðan
hræruna ofan á hverja ferskju með
matskeið. Setjið í mjög heitan ofn og
bakið ljósbrúnt. Smjörsteikt jarðepli
og þurrsoðin hrísgrjón eru mjög góð
með.
HAMBORGARHRYGGUR
Mynd.
60—70 mín. suðutíml.
2i/2 kg. hamborgarliryggur, verð
pr. kg. kr. 275.00 —alls kr. 687.00.
1/2 kg. bananar kr. 21.50
2 epli kr. 10.00
2 stk. lárviðarlauf
1 stk. gulrót
6 piparkorn
2 smálaukar
Krydd og lögun sósu kr. 15.00
Sjóðið hrygginn í potti, rétt hulinn
vatni, ásamt ofannefndu í 1 klst. Tak-
ið hann svo úr soðinu og látið kólna.
Meðan skal soðið sjóða við hægan hita
undir loki. Skerið kaldan hrygginn
niður í mátulega þykkar sneiðar og
leggið sneiðarnar þétt saman aftur,
svo þær myndi hrygglag, og setjið x
ofnskúffu, ásamt V2 ltr. soði. Flysjið
tvo banana og skerið í tvennt eftir
endilöngu, tvö epli eða ananas eru skor-
in í smástykki og raðað ofan á steik-
ina ásamt banönunum (eins og myndin
sýnir) og nokkrum minútum áður en
máltíð byrjar, skal flórsykri stráð
gegnum sigti yfir allan hrygginn, sem
síðan er settur í vel heitan ofn (ca.
10 min.) eða þar til kjötið hefur feng-
ið gljáandi fallegan brúnan lit.
Rauðkál, sveskjur, eina eða tvær
tegundir grænmetis, ásamt sykurbrún-
uðum jarðeplum, er sjálfsagt að bera
með.
Æí,
Sósur með
Hamborgarhrygg
Soðið af hamborgarhryggnum skal
jafna með hveitijafningi og sigta í
hreinan pott. Af þessu stigi er hægt
að laga margbreytilegar góðar sósur,
sem vel eiga við hamborgarhrygg.
Ekki likar öllum vín í sósur, svo hér
verða látnar fylgja góðar uppskriftir
með og án víns.
1.
Hið jafnaða soð er bætt bragðgóðum
sósulit, salti eftir smekk, og síðan er
helmingi af sósu hellt á ofnpönnuna og
látið blandast soði því, sem eftir er
þegar búið er að setja hrygginn á fat.
Sigtið svo sósuna af pönnunni upp í
sósupottinn aftur, og þá er sósan til-
búin að berast á borð með steikinni
(ein matskeið af þeyttum rjóma í
sósukönnuna skemmir ekki). Verð ca.
kr. 10—15.00.
II.
Opnið eina dós af sveppum, skerið
þá í sneiðar, afhýðið tvo lauka og
skerið þá í 6 hluta hvorn. Bræðiö
smjör, ca. 50 gr. á pönnu eða í potti,
ljósbrúnið laukinn, bætið sveppum í
og látið malla um stund, bætið svo 1
bolla af rauðvíni í ásamt >/2 bolla tómat-
sósu. Látið þetta sjóða saman við hæg-
an hita i 5 minútur, síðan er bætt 1
ltr. af hamborgarhryggsósunni í. Er þá
tilbúin mjög bragðgóð vinsósa,
meira víni má bæta í eftir vild.
Verð án rauðvíns — sem er á breyti-
legu verði — ca. kr. 90.00.
iiamborctEÍihryggur
— AFGANGAR
Sneiðar af hamborgarhrygg.
Hveiti, sinnep, 1 egg, rasp, smjör-
líki. Verð ca. kr. 45.00.
Snúið kjötsneiðum f hveiti, smyrjið
svo báðum megin með sinnepi. Þeytið
eggið ásamt 3 matskeiðum af vatni í
djúpum diski, ásamt V2 tsk. salti. Væt-
ið kjötsneiðarnar vel upp úr eggjun-
um, snúið þeim síðan i raspi. Ljós-
brúnið smjörlíkið á pönnu og steikið
sneiðarnar, svo litur verði fallega
brúnn. Þá er þessi mjög bragðgóði há-
tíðaréttur tilbúinn.
Allar tegundir af nýju grænmeti eða
dósagrænmeti má bera með (súrkál
blandað eplamauki, er mikið notað i
Bandaríkjunum og Þýzkalandi).
Sósur:
Sósan frá hamborgarhryggnum cða
rcmolaði, cða þcr gctið valið úr öllum
tegundum af pakkasúpum, og gert
úr þcim þá sósu, sem yður lízt
bczt á, aðcins mcð því að nota hclnx-
ingi minna vatn cn sagt er til um
fyrir súpur, munið aðcins að það þarf
að liræra vel f pottinunx.
REYKTUR SVÍNABÓGUR
Mynd.
Suðutími ca. 2 klst.
Það er nærri ótakmarkað, hve marg-
breytilegan hátíðamat er hægt að mat-
reiða úr reyktu svínakjöti. Tveggja
kílóa bóg (verð pr. kg. kr. 245.00 —
alls kr. 490.00) þarf að sjóða í tæp-
lega tvo tíma og er það ráðlegt að
sjóða kjötið daginn áður, kjötið verð-
ur drýgra og hægt að skera jafnari
sneiðar, þegar það er kalt.
Geymið soðið.
Eftirfarandi uppskriftir miðast við,
að sá hátíðamatur, sem þér kjósið að
matbúa, sé gerður í ofni eða potti.
Hér er dönsk uppskrift fyrir 6
manns:
12—14 sneiðar reykt svínakjöt
8 nýjar púrrur eða sperglar,
verð ca. kr. 96.00
150 gr. smjörllki (smjör)
ca. 100 gr. hveiti
1 matsk. Karry
V-2. tsk. sykur
6 heil piparkorn
1 tsk. þurrkað timian
1 stór gulrót
verð ca. kr. 22.00
IV2 ltr. soð
Látið soðið í pott ásamt pipar, tim-
ian og gulrót og sjóðið við hægan hita
í 15 mínútur. í öðrum potti bræðið
þér smjörlíkið, látið karry í og látið
malla í 3 mínútur. Síðan er hveiti sett
saman við og hrært vel saman. Hellið
síðan soðinu gegnum sigti smátt og
smátt út í jafninginn, hrærið vel á
milli, þar til mátulega þykk sósa hef-
ur fengizt. Sjóðið púrrurnar í vatni
með smávegis salti, ca. 15 mínútur.
Takið þær úr vatninu og látið vatnið
renna af þeim. Smyrjið eldfast leirfat
með smjöri, leggið kjötsneiðar í, síð-
an púrrurnar ofan á kjötið og hellið
ca. 2 ausum af sósu yfir púrrur og
kjöt. Setjið það í heitan ofn og látið
hitna vel. Ef upphitun fer fram í
potti, hitið þá sneiðarnar í kjötsoðinu
og raðið þeim síðan á fat ásamt púrr-
um og hellið sósu yfir. Með þessum
rétti er hægt að nota hvaða tegund
grænmetis sem maður óskar, en það
gefur fallegastan litblæ að nota græn-
ar baunir og gulrætur. Soðin jarðepli,
eða jarðeplastöppu, skal og bera með.
Auk þess er pickles eða agúrkusalat
gott.
Hér er uppskrift frá Texas.
Opnið 1/2 dós af niðursoðnum tómöt-
um (ca. kr. 25.00) og setjið í pott, saxið
tvo lauka (ca. kr. 3.50) og látið í
pottinn ásamt 1 tsk. hvítlauk og
2 bollum af hvítvíni (ca. kr. 25.00),
sjóðið við hægan hita undir loki. Bætið
soði frá bóg í, svo sósan verði ekki of
þykk. Þegar laukurinn er soðinn, skal
pressa alla sósuna gegnum sigti og
svo að síðustu krydda með salti og
pipar. Hellið svo sósunni yfir kjöt-
sneiðarnar, sem búið er að raða í
eldfast leirfat. Skerið fylltar olivur í
sneiðar og stráið yfir allan réttinn.
Síðan skal leirfatið sett í heitan ofn-
inn og allt brúnað vel (ca. 10 mín.).
Frönsk jarðepli og spergil eða snittu-
baunir skal bera með. Krydd og óliv-
ur kr. 30.00.
Amerísk hamsteik.
Mynd. \
Kjötsneiðarnar þurfa að vera V2 cm
þykkar. Opnið heildós ananas (kr.
60.00), sigtið safa frá, skerið an-
anasinn í smábita. Látið 200 gr. sykur
í pott, ásamt V2 bolla af safanum, lát-
ið sjóða við mikinn hita, þar til sykur
er orðinn ljósbrúnn. Bætið ananas í
sykurinn og hrærið 1 með trésleif.
Setjið nú pönnu yfir með ögn af
smjöri og þegar smjörið er ljósbrúnt,
eru kjötsneiðarnar lagðar á pönnuna
og léttbrúnaðar. Síðan sett í eldfast
leirfat og sykri með ananas hellt yfir.
Stráið dálítilli steinselju og pap-
riku ofan á steikina og setjið hana
svo smástund í heitan ofninn. Berið
á borð með köldu grænmetissalati eða
heitum grænum baunum og steiktum
jarðeplum. Sykur og krydd kr. 5.00.
VIKAN-JÓLABLAÐ 59