Vikan


Vikan - 07.12.1967, Page 66

Vikan - 07.12.1967, Page 66
DANISH GOLF Nýr stór! gódur smávindill Smávindill í réttri stærd, fullkominn smávindill, fram- leiddur úr gædatóbaki. DANISH GOLF, nýr, stór! SmávindilljSem ánægja er ad kynnast.DANISH GOLF erframleiddur af stærstu tóbaksverksmidju Skandina- viu, og hefir í mörg ár verid hinn leidandi danski smávindill. Kauþid í dag DANISH GOLF í þœgilega 3stk.þakkamm. SCANDINAVIAN TOBACCO COMPANY DENMARK um aS tala um í dag. . . . Jó, og Dísa hugsaði svolítið. Svo sagði hún, að . . . jó, hún gaeti bezt trú- að því , Hann hetði sama sem sagt mér, það. Hann væri svo mik- ill vinur barnanna.... Ég spurði hana þá, hvort hún vildi koma með mér? — Ég veit ekki, sagði hún. — Það er ekki víst, að mamma vilji leyfa mér það. Leyfa þér það? Úr því að Hann hefur sagt mér, að ég eigi að gera þetta, þá hefur Hann líka sagt, að þú eigir að vera með mér, fyrst ég bið þig að koma, og heldur þú, að mamma þín sé á móti því, sem Hann hefur sagt — og núna, þegar afmælið hans er að koma? — Kannski ég komi þá, sagði Dísa, — en annars ert það þú, sem hefur verið sagt að gera þetta — og það er ekkert víst, að ég . . . . — Sagðirðu ekki sjálf, að Hann væri vinur barnanna, og heldurðu þá . ? Ég anza þessu nú ekki, sagði ég. — Annars geri ég þetta líka fyrir pabba minn, því að hann mundi annars hafa gert það, en hann langar svo til að klára stíl- ana, og svo geri ég það fyrir mömmu, sem vill, að pabbi fái að klára þá og geti skrifað ! jólafrí- inu sínu — já, alveg eins og við leikum okkur og þurfum ekki í skóla! Hann þagnaði andartak, en hélt síðan áfram: — Svo sagði Dísa: — En það ert þú, ,sem verður að segja allt. Þú ert svo góður að segja. — Jæja, sagði ég, — ég er svo- sem ekkert góður svoleiðis, en við látum nú sjá. Og svo stukkum við af stað, og Dísa var svo hroðalega góð að hlaupa — það var svo gotf að hlaupa með henni, að ég varð bar- asta ekkert lúinn. Ég varp öndinni og spurði: — En Nonni, hvað sagðirðu við þá, sem þið fóruð til? — Ég sagði bara, að það þyrfti að kaupa jólagjafir fyrir fátæk börn, og hvort . . . já, að við Dísa værum að safna peningum, og svo spurði ég, hvort maðurinn vildi ekki gefa svolítinn aur. - Og fólkið? — Það var að spyrja, hver hefði beðið okkur. — Og hvað sagðir þú? Hann hikaði dálítið, en sagði síðan: — Ég sagðist bara ætla með peningana til prófastsins, því ég skal segja þér eitt, pabbi: Það er svo einkennilegt, hvað sumir verða skrítnir, ef maður fer að spyrja um eða nefna Jesú eða Guð, svo ég . . . — Og hvernig gekk ykkur þá? — Allt í þessu fína með það. Við fengum mikla, mikla peninga, næst- um þv! eintóma seðla. Það spurði sumt, hvað við hétum, og hver ætti okkur, og ég sagði það — og hvað við værum gömul, og sumir klöpp- uðu okkur, og einn sagðist vera frændi þinn, og hann sagðist þekkja þig og bað að heilsa. Sömuleiðis, sagði ég frá þér. Og hann gaf okk- ur stærsta seðilinn. Það var hundr að kall. Nei, ég man ekki hvað maðurinn hét, en hann var aga- lega stór og feitur, og það var . . . var svona skipalykt af honum. — Hann var víst af togaranum að sunnan, sem liggur hérna við bryggjuna. Það er verið að gera við vélina í honum. Hann fer klukk- an níu í kvöld. Stóri maðurinn klappaði mér afskaplega vel, en það var bara eitthvað svo þung á honum höndin. — Fóruð þið til margra? — Já, já, margra, margra. En ég þekki þá ekkert — suma, en sumir hafa líka komið hérna til ykkar mömmu og drukkið kaffi, svona karlar, sem tala mikið — ég man ekki, hvað þeir heita, — jú, hann Þórarinn kennari og hann Jónas — ég þekki þá. — Hvað svo með peningana — ertu með þá? — Peningana? Ég gerði eins og ég sagði. Ég fór með þá til prófasts- ins — hreint alla saman, og Dísa vildi ekki, og ég fór bara einn. En prófasturinn var svo góður, og fyrst bæði þéraði ég hann og yðraði hann, eins og mamma sagði mér einu sinni, að ég ætti að gera, en svo gleymdi ég því nú víst, en var samt voða kurteis, nikkaði, þegar ég heilsaði og kvaddi. Og Nonni hneigði sig svolítið. Nei, ég brosti ekki, en ég hélt áfram að spyrja: — Og hvað sagðirðu við hann? — Ég sagði honum bara allt, ja, að Dísa héldi það endilega, að Jesús hefði sagt mér að fara og gera þetta, svo að fátæku börnin á Holtinu og fátæku börnin hans Elliða og hans Jóa brennivíns gætu fengið jólagjafir, því að foreldrarn- ir. . . . Nonni litli hristi höfuðið: — Nei, nei, þeir gætu ekkert gefið þeim, þau væru svo voðalega mörg, börnin á Holtinu og hjá honum Ell- iða þarna upp frá, og hann Jói brennivíns drykki . . . já, drykki svo mikið brennivín. — Nú — og hvað sagði prófast- urinn? — Hann sagði nú ekkert fyrst. Hann var bara voða góður og kúnstugur í framan, og svo sagði hann, — já, hann sagði: — Og þú kemur með þetta til mín? — Já, ert þú ekki . . . ekki fyrir . . . þú talar um Guð og Jesú í kirkjunni — jólabarnið, ég man á jólunum í fyrra — ert þú ekki eig- inlega fyrir þá hér? sagði ég. Þá varð hann enn skrítnari og spurði mig nú ákaflega eitthvað einkennilega — líkt og hann væri hálf leiður: — Finnst þér þá ekki, að ég hefði átt að gera þetta sjálfur? — Hvað? sagði ég, þv( að ég bara skildi hann ekki. — Safna peningunum. — Þú? Ekki hefðir þú getað hlaupið svona — og svo þarft þú að . . . já, þarft þú ekki að skrifa 66 VIKAN-JÓLABLAÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.