Vikan - 07.12.1967, Page 76
Fallegt... Fallegra...
Fallegast?
Hver getur gert upp á milli?
Þær nota allar EVETTE hárlakk og lagningarvökva.
EVETTE hárvörurnar gefa hárinu gljáa og næringu,
— hár yöar verður aldrei of stift en helzt þó
i skorðum, og lagningin endist lengur.
TT6
DipNset
xntnnM***
Hair
HANDHÆGT.
Evette hárlakk fæst í henfugum
smástaukum til að hafa í veski.
Kaupið Evette hárlakk strax i dag
þér munið ekki sjá eftir því.
Ainlirril
Sími 23215
Komið, skoSiö og tryggið yður bíl.
EgilE Vilhlálmsson hf.
Laugaveg 118. — Sími 22240.
ALLT Á SAMA STAÐ
1968 árgeröir komnar!
SIMGER VOGUE - HILLMAN HUNTER
hvíldum okkur þar í nokkra
daga, og ég sendi ríkisstjórninni
skýrslu um hvernig umhorfs
væri á Spáni. Raunar kom ég
þangað tvisvar aftur meðan borg-
arastyrjöldin geisaði. — Næstu
tólf mánuði var ég í markaðs-
ieit og kom þá til flestra ríkja
Evrópu, en settist eftir það að í
Þýzkalandi.
Næsta grein: Mussólíni, Hitler
og fyrsti ófriðarveturinn.
☆
Xlí { bláan cicrinn
Framhaid af bls. 21.
að sjó um alla barnatíma. Þetta
endaði nóttúrlega með því, að ég
braut samninginn og tilkynnti út-
varpsráði, að ég væri hættur við
barnatímana, og síðar að ekki
kæmi til mála að stjórna svona
mörgum leikritum sjálfur. Það er
svo mikið starf að velja öll leikrit,
sjá um þýðingar á þeim, annast
alla verkstjórn í sambandi við þetta
og fleira og fleira, að það er ekki
einum ætlandi, þótt svo sé gert.
— Þú hlýtur að hafa töluvert
samband við leiklistarstjóra útvarps-
stöðvanna í nágrannalöndunum.
— Hér í eina tíð var það fastur
liður í mínu starfi, að sækja fundi
með starfsbræðrum mínum hjá út-
varpsstöðvum Norðurlandanna ann-
að eða þriðja hvert ár. Síðan breytt-
ust aðstæður hér, og mér hefur
ekki verið kleift að hitta þá öðru
vísi en einn og einn ef svo hefur
borið við að ég brygði mér utan
eigin erinda. Þá hef ég ekki sett
mig úr færi að heimsækja þá, enda
höfum við samvinnu að því leyti,
að þeir senda mér öll þau leikrit.
sem þeir taka til meðferðar.
— Hver er fjöldi starfsmanna í
sambærilegum deildum útvarps-
stöðvanna á Norðurlöndum?
— Hann er þetta 10—14 manns,
þar með taldar vélritunarstúlkur,
sem skrifa út leikrit. Þar eru Kka
leiklistarráðunautar, sem taka ofan
af fyrir leiklistarstjórana, lesa fyr-
ir þá og vinsa úr það, sem er til
frekari athugunar. Þessar stöðvar
flytja að vísu nokkuð fleiri leikrit
en við, því þær hafa allar tvær
dagskrár á ólíkum bylgjulengdum
handa hlustendum sínum að velja
um. Þó ekki nándar nærri helm-
ingi fleiri, því leikritin sem flutt
eru í dagskrá 1 eru mörg endur-
tekin í dagskrá 2 í sömu vikunni.
Þessi mikli munur á starfskröftum
við þessi störf verður því jafn frá-
leitur þrátt fyrir þetta. Eg held líka
að flest útvarpsráð sem hér hafa
setið í minni tíð hafi skilið að hér
var eitthvað bogið, enda hafa þau
oftar en einu sinnni beint því til
útvarpsstjóra að á þessu yrði ráð-
in bót, en hann ekki tekið til greina.
Líklega er ástæðan sú að hann beri
svo mikið traust til mín að hann
vilji ekki láta neinn koma nærri
þessu nema mig, og ætti ég auð-
76 VIKAN-JÓLABLAÐ