Vikan


Vikan - 07.12.1967, Page 108

Vikan - 07.12.1967, Page 108
BimoaOur smábíil VIÐRAÐANLEGT verð Citroén 1968. Spurningin í dag: „Hvernig fjár- festi ég bezt í ökutæki til daglegrar notkunar?“ Citroen DYANE getur leyst flutn- ingsvandamál yðar hvar sem er á landinu. Mætið nýjum efnahagsráð- stöfunum með meiri hagsýni í vali hcimilisbílsins. SÖLFELL HF, Skúlagötu 63 - Sími 17966 - Pósthólf 204 - Reykjavík ANDREA sjónvarp af hinum margeftirspuröu ANDREA sjón- varpstækjum. ANDREA sjónvarpstækin eru viöurkennd fyrir langdrægni. - Skýr mynd og glæsifegt útlit setur ANDREA sjónvörpin í sér flokk. ANDREA sjónvörpin eru með inn- byggðum loftnetum, sem hafa við góð skil- yrði, reynzt algerlega fullnægjandi. - ANDREA sjónvörpin eru bandarísk gæða- vara. ir báða vængi, eftir að lögreglu- læknirinn hafði verið tilkallað- ur samkvæmt tilmælum Ians Spencer. Líkið af Caroline Wynd- ham hafði verið flutt til fylkis- sjúkrahússins. —■ Það var það eina sem vit var í. þrumaði Spencer og dró fram pípuna. — Það er ómögu- legt að kryfja almennilega í kjallaraholunni hans Tysons. —- Hefur Martin sagt yður frá Ronnie Sainsbury? Adrienne beindi spurningunni til lögfræð- ingsins. — Það eru mörg vitni að viðræðunum, sem ég átti við Caroline Wyndham, þegar nafn hans var nefnt. — Hm — ég veit það, ungfrú Blair, en það er í sjálfu sér ekki sönnun fyrir því að hin látna og þessi Ronnie Sainsbury hafi hitzt í þorpinu. — Það hljóta þau að hafa gert, sagði hún. — Af hvaða ástæðu annarri hefði Caroline átt að fara til myllunnar á þessum tíma dags? Setrið Merlinbank, sem er í eigu frænku og frænda Ronni- es, liggur meðfram ánni; múrinn umhverfis landareignina, liggur einmitt upp að myllunni. Bendir það ekki einmitt til þess að Caroline hafi farið þangað til fundar við Ronnie? — Það getur verið, en það er engin sönnun. Bedlowe blístraði lágt. Adrienne var óþolinmóð. Hún gaut augunum á Martin og lækn- inn en þeir voru niðursokknir í sínar eigin hugsanir. — Ég veit ekki hvað fram fer í rannsóknarrétti, en ég er fús að mæta sem vitni á morgun. Við vitum öll saman að Caroline kom ekki til Crompton til að hitta Martin. Þar með verður Ronnie sá eini sem hún þekkir í þorpinu. Það er sennilegt, að hann hafi verið sá síðasti sem sá hana lifandi. — Rétt er það, það er hugs- anlegt. Bedlowe kinkaði kolli, slokraði vænt af koníakinu og dæsti ánægður. — Fyrirmyndar koníak, ungfrú Blair. Þér hljótið að hafa erft fyrirmyndar kjall- ara. — Þér ætlið þá að láta Ronnie bera vitni? spurði Adrienne. — Kannske. Martin Westbury hætli að rannsaka gólfteppið. — Er það fyllilega nauðsynlegt, að Adri- enne verði viðstödd þessi yfir- heyrslu? Bedlowe brosti til hennar. — Ég er hræddur um að þú eigir erfitt með að halda henni frá því.... — Takk, sagði hún og kinkaði aðeins kolli. — Ætlið þér að biðja mig að vitna? Bedlowe tæmdi glasið. — Það er ekki víst að það verði nauð- synlegt. Ég skal láta yður vita það seinnna. Ég skal viðurkenna að þetta, að bíllinn er í eigu herra Kynossis, hefur mikil áhrif á mig, en það er of snemmt að ákveða hvað maður á að halda sig við á morgun. Nú verð ég að þakka fyrir mig, ungfrú Blair. Ég hef eitt og annað að sýsla, ef ég á að vinna fyrir þeirri vænu fjárhæð, sem þessi gamli skólabróðir minn verður að punga út með, eftir að málinu lýkur. Martin bankaði á öxlina á hon- um. — Lýkur giftusamlega, áréttaði hann. — Já, auðvitað. Bedlowe brosti dularfullu brosi. — Ég þakka aftur fyrir fyrirmyndar máls- verð, ungfrú Blair, og verið þér nú sælar. Martin kemur áreiðanlega aft- ur, þegar við höfum lokið því nauðsynlegasta af. Hann tók hlý- lega í hönd hennar og gekk svo til dyra. — Ertu að koma? Hann beið eftir Martin og þeir gengu saman út. 18. Fjórar verur voru á leið upp eftir bröttum stígnum, upp á fjallstindinn. Maðurinn og kon- an gengu hægt og héldust í hend- ur milli trjánna báðum megin stígsins. Drengurinn og hundur- inn hlupu léttstígir á undan, spenntir að vita hvað tæki við, þegar komið væri upp á brekku- brúnina. — Ég kem til með að sakna alls þessa, sagði Martin West- bury og litaðist um með þrá í auga. Adrienne horfði um stund á andlit hans, fylgdi hverri hrukku, sem áreynsla síðustu daga hafði myndað umhverfis augu og munn. 108 VIKAN-JÓLABLAÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.