Vikan


Vikan - 05.12.1968, Side 9

Vikan - 05.12.1968, Side 9
Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Hoover Einkaumboð: MAGNÚS KJARAN Umboðs- & heildverzlun Heimsbekkt vðrumerki þvottavélar 8 gerðir kæliskápar 5 gerðir ryksugur 8 gerðir bónvélar 2 gerðir rafmagnsofnar 3 gerðir straujárn uppþvottavélar hárþurrkur hrærivélar teppaburstar eldavélahimnar 3 gerðir Hoover vörurnar fcíst í Hoover-kjallaranum, Austurstræti 17, Reykjavík, sími 14376. yrði hún að fara til kirkju Hjá höllinni stóð kirkja og var það'' fögur bygging. Þegar lítil stund er liðin kemur Ulfhildur út úr höllinni íklædd drottningarskrúða og hefur gull- hring á hverjum fingri. Hún ber barn á handlegg sér, en við hina hlið hennar gengur maður með kórónu á höfði og klæddur kon- ungsskrúða; ímyndar vinnumaður sér að þetta sé kóngur og drottn- ing. Þau gengu í kirkjuna og fylgdi þeim mikill fjöldi fólks sem allt var einkar vel búið og var gleði- svipur á öllum. Vinnumaður gekk nú að kirkjudyrunum og sá hanni enginn, og Ulfhildur vissi heldur ekkert af honum. I þessu bili var tekið til messu og mátti heyra fal- legar hörpur og fallegan söng. Barnið sem Ulfhildur hélt á varð óspakt um messuna og hljóðaði; léði hún því þá einn gullhring af hendi sinni, en barnið fleygði hon- um fram eftir kirkjugólfinu svo vinnumaður gat náð hringnum. Þegar messan var úti gengu allir úr kirkju og Ulfhildur með hinum vel klædda manni inn í höllina, og sýndist þá vinnumanni vera sorg- arsvipur á öllum. Að stundarkorni liðu kemur Ulf- hildur í sínum fyrra búningi, geng- ur frá höllinni og flýtir sér. Hún fer veginn sama sem hún kom og vinnumaður á eftir. Er ekkert frá sagt fyrr en þau koma að vatninu og leit vegurinn eins út að vatninu eins og fyrr er frá sagt. Við vatnið gnýr hún glófana og þá kemur brúin og ganga þau hana yfir vatnið. Þá gnýr hún glófana aftur og brúin hverfur. í þessum svifum flýtir vinnumaður sér á undan Ulf- hildi heim og háttar, en hún kem- ur á eftir og háttar líka, og er þá rétt komið undir dag. Nú dagar og fer fólk á fætur. Þá mælti húsfreyja við Úlfhildi að nu yroi nun ao tara tn Kirigu i dag. Þá gegnir vinnumaður og segir að hún þurfi víst ekki . að fara til kirkju í dag því hún hafi verið í kirkju í nótt. ,,Mæltu manna heppnastur ef þú getur sannað," mælti Úlfhildur. Segir þá vinnu- maður alla sögu hvermg til hafa gengið um nóttina og sýnir gull- bringinn til merkis. Nú verður Úlfhildur glöð mjög og segir frá hvernig á standi fyrir sér. Hún kveðst vera kóngsdóttir úr álfheimum, segist hún hafa yrzt við kerlingu, en hún hafi lagt það á siq að hún skyldi alltaf mega vera hjá mönnum (eða í mann- heimum) þaðan í frá nema því að- eins að mennskur maður kæmist með henni til álfheima á jólanótt, þeirri fyrstu, annarri eða þriðju eftir það á hana var laat. Það eina leyfði kerlingin að hún skyldi mega finna mann sinn í þrjár jólanætur. Fn Úlfhildur kvaðst aftur hafa lagt það á kerlingu að hún skyldi deyja ef hún kæmist úr álögunum. Úlf- hildur mælti við vinnumanninn: „Það mæli ég um að þú verðir hinn mesti gæfumaður héðan í frá, og á morgun skaltu ganga ofan að vatninu; muntu þá finna sjóði tvo; skaltu eiga þann minni, en hús- bændur þínir þann stærri." Síðan bióst Úlfhildur til ferðar og kvaddi alla með vinsamlegum orðum. Hún flýtti sér og hélt ofan að vatninu og hvarf svo enginn hefur séð hana síðan, en allt heimilisfólkið saknaði hennar. Daginn eftir gekk vinnumaður ofan að vatninu og fann þar tvo sjóði og voru báðir stórir. I minni sjóðnum voru gullpeningar, en silfurpeningar í hinum stærri. Er sagt að vinnumaður yrði frá þess- um tíma gæfumaður alla ævi og endar svo þessi saga. ☆ ca 0 áltwv œf ruTLi úKef i jjixjH g Ltn civSO <xn u Maður hét Kári og var Össurar- son. Hann var systurson Hjálmúlfs er nam Blönduhlíð frá Djúpadalsá upp til Norðurár og bjó að Hjálm- úlfsstöðum; hann liggur í Úlfshaugi til suðurs frá bænum sem enn er merki til. Kári kom út með Hjálm- úlfi og nam land frá Norðurá upp til Merkigils og bjó að Flatatungu,- var hann því kallaður Tungu-Kári. Son hans hét Þorgrímur; var hann mikill maður og forvitri. Hann eign- aðist að konu Áshildi dóttur Þor- brandar frá Þorbrandsstöðum í Norðurárdal og fylgdi henni að heiman Silfrastaðaland, og setti Þor- grímur bú saman að Silfrastöðum og varð mjög auðugur maður að gang- andi fé. Þorbrandur bjó að Þor- brandsstöðum til elli. Hann hafði annað bú að Haukagili; lét hann gjöra á bæ sínum þann mikla þjóð- brautarskála er um getur í Land- námu og víðar. Lá þar þjóðvegur gegnum skálann og skyldi jafnan matur á borði standa, öllum heim- ill er hafa vildi. Þorbrandur var heygður hinum megin Norðurár, ná- lægt eyðijörðu þeirri sem heitir Vík, Framhald á bls. 87 * * * * ¥ ¥ * * * * * * * * * ¥ * * * * * * * * * * ¥ * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * vK I vK-s * * * * * * * * * * -X- * * * * & * * * * ¥ * * * -tt- ¥ & * ¥ * $$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$ HOOVER VIKAN-JOLABLAÐ 9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.