Menntamál - 01.10.1950, Side 3

Menntamál - 01.10.1950, Side 3
MENNTAMÁL XXIII. 3. SEPT.—OKT. 1950 HALLDÓR HALLDÓRSSON: Rabb um íslenzka stafsetningu. Erindi flutt á þingi norðlenzkra barnakennara. 9. júní 1950. Eiríkur Sigurðsson kennari fór þess á leit við mig fyrir hálfum öðrum mánuði, að ég flytti hér fyrirlestur um íslenzka stafsetningu. Ég get ekki láð Eiríki, að hann skyldi fara á fjörurnar við mig um þetta, því að mér er ógern- ingur að neita því, að ég er nokkuð við stafsetningarmál riðinn. Ég hef um alllangt skeið stundað íslenzkukennslu, og þá um leið stafsetningarkennslu, og ég hef samið tvær bækur, er varða íslenzka stafsetningu. Ég ætti því að geta, og get, sagt ýmislegt um þetta efni. En þó er mcr nær að ætla, að Eiríkur hafi verið seinheppinn í vali. Ef satt skal segja, hefur mér alltaf virzt árangur af stafsetningar- kennslu minni ömurlega lítill. Mér hefur fundizt, að ég hefði ekki örindi sem erfiði. Þetta hefur orðið til þess, að ég hef, ef til vill, hugsað meira um þennan þátt náms- efnisins en aðra. Það er sagt, að ýmsir merkir uppeldis- fræðingar hafi verið misheppnaðir uppalendur. Ástæðan gæti verið sú, að lélegUr árangur í uppeldi barna þeirra hafi orðið þeim tilefni til spaklegra hugleiðinga, er

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.