Menntamál - 01.10.1950, Blaðsíða 6

Menntamál - 01.10.1950, Blaðsíða 6
148 MENNTAMÁL Ég hef rakið þessa sögu hér nokkuð nákvæmlega. En enginn skyldi ælta, að ég hafi gert það af nokkurs konar fordild eða hégómaskap, heldur af því að ég geri ráð fyrir því, að ýmsir kennarar hafi svipaða sögu að segja, og mér virðist mega draga af henni nokkra lærdóma. Ég hef kennt mörgum nemendum, sem mér hefur virzt svipað ástatt um og mig, og ég þykist vita, að flestir kennarar hafi líka sögu að segja. Það, sem ég vildi alveg sérstaklega benda á í þessu sambandi, er, að kennarar, sem aldrei hafa lagt á sig það mikla erfiði, sem er því samfara að læra flóknar og hundleiðinlegar stafsetningarreglur, verða að gera sér grein fyrir því mikla erfiði, ég vildi næstum því segja sál- arkvöl, að nema íslenzka stafsetningu á þann hátt að hafa í huganum fjöldann allan af reglum og heimfæra einstök dæmi undir þær. Nú vildi ég mega biðja þess, að enginn misskildi mig. Ég vil þegar í upphafi taka það fram, að ég tel fulla nauðsyn bera til þess, að fólk almennt nái góðum tökum á íslenzkri stafsetningu. Á þessu tel ég því meiri þörf, því minni sem skilningur fólks er á nauðsyn þess, að þessu atriði sé gaum- ur gefinn. En á því bryddir nokkuð, að almenningur telji stafsetningarkennslu lítið gildi hafa og telji jafnvel, að hún eigi rætur að rekja til andleysis kennara. En sálar- kvölin, stafsetningarreglurnar, er, að því er ég hygg, nauð- synleg. Ég kann að minnsta kosti enga aðra aðferð við stafsetningarkennslu, sem almennt sé vænlegri til árang- urs. , En þá kynni einhver að spyrja: Er ekki unnt að koma fram með einhverjar breytingar, sem orðið geta til bóta? Slík spurning er eðlileg, og hún er meira en það. Við meg- um aldrei gleyma þeirri spurningu eða öðrum, sem ganga í svipaða átt. Það er ávallt bráðnauðsynlegt að hafa hug- ann opinn fyrir nýjungum jafnt í þessum efnum sem öðrum. Á hinn bóginn er einnig jafnnauðsynlegt að láta ekki nýjungagirnina hlaupa með sig í gönur, heldur vega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.