Menntamál - 01.10.1950, Blaðsíða 19

Menntamál - 01.10.1950, Blaðsíða 19
MENNTAMÁL 161 hve mikill lestrarhraði nemandans þarf að vera, til þess að verulegs árangurs sé að vænta af stafsetningarkennsl- unni. Einnig þyrfti að rannsaka nákvæmlega, hve náið samband er milli þess, hve rétt nemendur lesa og hve rétt þeir stafsetja. En þess gerist síður þörf, af því að menn gera sér almennt betur grein fyrir því. Ýmsir kennarar hafa lagt fyrir mig þá spurningu, hvort ég teldi ekki, að sú kennsluaðferð, sem nú mun tíðust við lestrarkennslu í skólum landsins, hin svonefnda hljóð- lestraraðferð, muni geta valdið nokkru um það, hversu stafsetningarfærni nemendanna stendur almennt á lágu stigi. Ég tel mig ekki þess umkominn að svara þessari spurningu fyllilega. Ég hef gert mér nokkurt far um það að spyrja nemendur mína, bæði þá, er vel hefur sótzt stafsetningarnám, og hina, er verr hefur gengið, hvernig lestrarnámi þeirra hafi verið háttað. Ég hef engar sam- svaranir fundið milli aðferðarinnar við lestrarnámið og stafsetningarfærninnar. Ég hef bæði haft góða og lélega stafsetningarnemendur, sem lært hafa að lesa bæði með eldri og nýrri aðferð. Allt um það vil ég ekki fullyrða neitt um þetta, en vil aðeins benda á, að hér er eitt efni, sem rannsaka þarf. Fjórða atriðið, sem ég vildi víkja að, er samband skrift- arfærni og stafsetningargetu. Ég hef grun um það, að stundum sé allnáið samband milli þessa tvenns, þ. e. að getuleysi í skrift hafi það stundum í för með sér, að staf- setningargetan verði einnig lítil, þótt námshæfni standi að öðru leyti á háu stigi. Mér skilst, að mjög sé erfitt að lag- færa skrift þeirra, er illa gengur í þeim efnum, en er ekki á einhvern hátt hægt að koma í veg fyrir það, að staf- setningarfærnin verði einnig lítil? Væri t. d. ekki hægt að venja slíka nemendur við að rita heldur á ritvél? Mér hefur sagt maður, sem stundað hefur nám í Ameríku, að við skóla, sem hann lærði, hafi verið talið, að stafsetningar- villur nemendaanna yrðu færri á ritvél en ef þeir hand-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.