Menntamál - 01.10.1950, Blaðsíða 21

Menntamál - 01.10.1950, Blaðsíða 21
MENNTAMÁL 163 Að fenginni slíkri rannsókn ætti síðan að gera tillögur, sem miðuðu að því að ráða bót á því öngþveiti, er ríkir í staf- setningarmálunum. Mér er það ljóst, að mjög mörgu þarf að breyta, bæði stafsetningunni sjálfri og kennslutilhögun, en engan veginn tel ég það til bóta að flana að breytingum. Ég hef enga trú á breytingum, sem ekki styðjast við ná- kvæma rannsókn og eru þaulhugsaðar, því að flan er ekki til fagnaðar eins og málshátturinn segir. Til þess að geta læknað meinsemdina verðum við fyrst að gagnþekkja eðli hennar. Ég minntist á það snemma í erindi mínu, að nokkuð virtist brydda á þeirri skoðun, að stafsetningarkennsla hefði lítið gildi. Björn Guðfinnsson getur þess einnig í fyrr- greindu erindi sínu, að almenningsálitið sé andvígt núver- andi stafsetningu. Eflaust er mikið til í því, en ég hygg, að andúðin á stafsetningunni eigi sér dýpri rætur. Ég er sannfærður um það, að miklar óánægjuraddir myndu heyr- ast, þó að stafsetningunni yrði breytt, og hún gerð léttari. óbeint á þó núgildandi stafsetning nokkra sök á þessari andúð. Á ég þar við, að andúðin á stafsetningunni verður því meiri, því minni sem árangurinn verður af stafsetning- arkennslunni. En þetta verður að breytast. Það er ekki mikil von til þess, að góður árangur fáist, ef nemendur og vandamenn þeirra eru fyrir fram andvígir námsgreininni. Enginn verður góður í stafsetningu.nemahannhafiáhugaá því að verða það. Mönnum verður að skiljast gildi stafsetn- ingarinnar. En hvert er þá þetta gildi ? Gildi stafsetningar er svipaðs eðlis og gildi málsins yfirleitt. Ef engar reglur giltu um stafsetningu, mundu menn eiga miklu erfiðara um að skilja ritað mál. Þetta liggur svo í augum uppi, að ekki ætti að vera þörf á að rökræða það, enda hygg ég, að eng- inn málsmetandi maður véfengi þörfina á því, að stafsetn- ingin sé samræmd, því að öllum er ljóst gildi þess, að hver skilji ritmál annars. Gildi stafsetningar er því framar öllu hagnýtt. Nú er mikið rætt um það, að skriffinnskan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.