Menntamál - 01.10.1950, Page 37

Menntamál - 01.10.1950, Page 37
MENNTAMÁL 179 Svo sem hljóðgreiningin ber með sér, eru tekin dæmi um hv á undan öllum sérhljóðum, sem á eftir því geta far- ið í nútíðaríslenzku. Oftast stendur hv í algerri framstöðu, en stundum lendir það þó inni í orði sakir samsetningar (mjallávítur o. s. frv.) Innstöðudæmin höfðu sérstakan tilgang, sem hér er ekki rúm til að skýra. Texta þennan notaði ég við athugun á framburði 28 blendingshljóðhafa: barna á aldrinum 10—13 ára. Las hver hljóðhafi textann einu sinni, en ég merkti jafnóðum við framburð á hverju áv-orði: hvort hann var hv eða kv. Alls eru /iv-dæmin í textanum 48. Möguleikarnir til hv- framburðar verða því samtals hjá öllum hljóðhöfunum 1344 (þ. e. 48X28). [xw]-möguleikarnir á undan [i] eru 168 (þ. e. 6x28) og jafnmargir á undan hverju eftir- greindra sérhljóða: [i, e, ö, a, o], — en annars 84 (þ. e. 3X28) á undan hverju hinna sérhljóðanna: [y, ei, ai, au]. Heildarniðurstöður þessara athugana urðu sem hér segir: Borið var fram hv [xw] á undan ' [i] í 38% dæmanna [i] - 34% [e] - 36% [y] - 54% [ö] - 43% [a] - 33% [d] - 59% [ei] - 39% [ai] - 43% [au]- 62% „ Yfirlit þetta sýnir, að breytingin hv > kv fer minnkandi á undan sérhljóðum í þeirri röð, er hér greinir: fa] — W — H — [i] — [ei] — — M — H — [au]. Aðaldrættir þróunarinnar virðast þá vera þessir: Hv

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.