Menntamál - 01.08.1962, Page 72
162
MENNTAMÁL
draga fyrir glugga og koma vélinni fyrir á réttum stað.
Síðan hefst frásögn fararstjóra. Hann hefur áður valið
sér sýningarmann, sem skiptir um myndir í vélinni, þegar
honum er gefið merki. Fararstjórinn lýsir ferðinni frá því
lagt var af stað úr skólanum. Þegar að verkefnunum kem-
ur, gefur hann réttum aðila orðið og skýrir hann þá frá
öllu, sem hann hefur orðið áskynja um verkefni sitt.
Þannig er öll ferðin rifjuð upp, og að þeirri upprifjun
lokinni skrifar hver nemandi stutta ritgerð um það gagn,
sem hann hefur haft af ferðinni, hvers virði frystihús er
fyrir þjóðarbúskapinn og hvað betur mætti fara í starf-
rækslu þeirra. Þá vitneskju, sem fékkst í þessari ferð,
fengu nemendur frá fyrstu hendi, vegna eigin reynslu og
viðtala við þá, sem gerst þekktu.
Sérfræðingaheimsóknir.
Lítið hefur verið að því gert hér á landi að fá gesti í skól-
ana, sem segja frá og útskýra fyrir nemendum þær sérgrein-
ar, sem þeir hafa valið sér að ævistarfi. Kennari getur ekki
verið sérfræðingur í öllu, en hann getur útvegað sérfræð-
inga, sem eru reiðubúnir að segja frá reynslu sinni og kunn-
áttu. Auðveldasta leiðin er að athuga, hvað foreldrar barn-
anna starfa og leita til þeirra um aðstoð. Þar að auki eru
aðilar, sem ávallt eru reiðubúnir að fræða og gefa upplýs-
ingar, svo sem lögregla, slökkvilið, tryggingarstofnanir,
verklýðssamtök og samvinnufélög.
Hugsum okkur, að í einum bekk séu börn, sem eiga að
foreldrum bifvélavirkja, garðyrkjumann, ljósmyndara,
lögfræðing, hjúkrunarkonu og flugmann. Þessir nemend-
ur gætu farið þess á leit við foreldra sína, að þeir aðstoð-
uðu skólann með því að segja frá starfi sínu. Kennarinn
gerði spjaldskrá yfir þá sérfræðinga, sem kostur væri á,
og kallaði á þá, þegar hann gæti haft þeirra not. Ljós-
myndarinn er gott dæmi um, hvernig hægt er að nota
heimsókn sérfræðings í vinsælli iðn til þess að auka áhuga