Skírnir - 01.01.1917, Side 35
28 Um launa- og eftirlaunatill. launanefndarinnar. [Skirnir
En hvernig á að fara að komabótumí
framkvæmd?
Á. nefndargerðunum verður lítið eða ekkert bygt.
líefndarálitið — tillögurnar um laun og eftirlaun — er
ónýtt, sé það satt, að ekki megi, læknanna vegna, selja
prentað mál til umbúða. Og úr því að þeim mönnum, er
þing og stjórn kaus til að undirbúa málið, hefir ekki
tekist betur en þetta, þá sé eg ekki annað ráð, en að e m-
b æ 11 i s m e n n, og íslenzkir mentamenn yfirleitt, taki
málið í s í n a r hendur og bindist samtökum um að búa það
svo vel í hendur þings og stjórnar sem kostur er á. Að
óreyndu er ekki ástæða til að væna þing og stjórn um
ósanngjarnar undirtektir undir sanngjarnar kröfur, verði
þær sæmilega reifðar. Þing og almenningur er ekki eins
ósanngjarn og sumir sennilega hafa óttast.
Hafi svo dauða nefndin sinn dóm með sér, nefndin,.
sem sá litið og gleymdi þvi litla, sem hún sá, þegar til
framkvæmdanna kom. En þökk sé yður, sem hlýdduð
þessum langa lestri svo vel.
Lárus H. Bjarnason.