Skírnir - 01.01.1917, Page 57
Frú Teresa Fenn.
Saga frá Vancouver, B. C.
Eftir
J. Magnús Bjarnason.
Einhver sú einkennilegasta, undarlegasta, og — fyrir
margra hluta sakir — ein hin merkilegasta kona, sem eg
hefi nokkurn tíma komist í kynni við, var frú Teresa Fenn.
Við (eg og konan mín) kölluðum hana jafnan Tárfinnu,
þegar við töluðum um liana okkar á milli. Okkur fanst
það einhvernveginn vel viðeigandi, og henni sjáifri þótti
það fallegt nafn, þegar við sögðum henni frá því.
Það var haustið 1912, að við fyrst sáum þessa konu.
Við vorum þá búin að vera rúmt hálft ár í Vancouver í
British Columbia, og höfðum búið í húsi á Bismarkstræti,
en vorum nú nýfliwtt í húsið nr. 2075 á Third Avenue
East. Það stóð hátt í hlíð, eða næstum upp undir brún á
hinni svokölluðu »Bröttu-brekku« í Grandview, sem er
austurhluti Vancouver-borgar. Þaðan er útsýni íagurt, og
loftið hreinna og heilnæmara en niðri í borginni við sjó-
inn. Þétt við liliðina á okkar húsi, að vestan, stóð liús
það, er Teresa átti lieima i. Það var fremur lítið, með
» b u n g a 1 ó « - lagi, og minti á japanskt sveitabýli. í
kring um það var hreinlegt: dálítill grasbali að framan, ofur-
lítill kálgarður á bak við það, og nokkrir blómsturpottar
á veggsvölunum og í gluggakistunum. — Gluggatjöldin
voru sérlega dýr og vönduð, en húsmunir allir fornfálegir,
að undanskildu litlu skrifborði, úr mahóní-viði, og bóka-
skáp, sem stóð í framherberginu.