Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 39
Islandsmeistarar Vals 1978fagna sigri að loknum leikgegn K.A. á Akureyri.
mestri eftirvæntingu, en það var
leikur ÍA og Vals á Skaganum.
Valur hafði þegar hér var komið
sögu hlotið 16 stig, sem sagt unnið
alla sína leiki, en Skagamenn fylgdu
þeim eins og skugginn með 15 stig,
en þeir höfðu unnið alla sína leiki,
að undanteknum fyrsta leiknum í
mótinu, er þeir gerðu jafntefli við
Þrótt.
Það var norðanrok og rigning á
Skipaskaga, er leikurinn fór fram
að viðstöddum 1882 áhorfendum.
Leikurinn var jafn og hefði jafntefli
verið sanngjörn úrslit, en hamingju-
dísirnar gengu í lið með Val, gat að
lesa í einu dagblaðanna, því Valur
vann 1-0, með marki Inga Björns á
síðustu mínútu leiksins, sem hann skor-
aði úr vítaspyrnu. Skagamenn
höfðu sótt að marki Vals án árang-
urs, en á lokamínútunni brunaði
Guðmundur Þorbjörnsson upp völl-
inn og var kominn frír innfyrir, en
Jón Þorbjörnsson markvörður
Skagamanna kom út á móti honum
og felldi hann. Ragnar Magnússon
dómari, dæmdi umsvifalaust víta-
spyrnu.
Valur hafði 3ja stiga forystu, er
síðari umferðin hófst og eins og í
fyrstu umferð voru ]mð Framarar,
sem þeir mættu fyrst. Þessi leik-
ur var nánast endurtekning á
þeim fyrri, því Valur vann nú eins
og þá með 3-0. Guðmundur Þor-
björnsson skoraði fyrsta markið
með sérlega glæsilegu skoti á 35.
mín. og hann bætti öðru við á síð-
ustu mín. fyrri hálfleiks. Jón Einars-
son hélt áfram þar sem frá var horfið
og skoraði á46. mín. Það voru 1750
manns, sem sáu þennan leik.
Víkingar voru andstæðingar Vals
í 11. umferð. Eins og fyrr héldu
Valsmenn uppteknum hætti og
sigruðu án þess að fá á sig mark. Ingi
Björn skoraði á 12. mín. og tveim
Etmar Geirsson öskar Inga Birni til hamingju.
37