Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 51
Valsmenn á ferð og flugi
Normennirnir áttu því að mæta
°kkur síðar um daginn eða kl. 11.10
°g nú var að duga eða drepast. - En
sjá strákarnir spiluðu eins og englar
°g settu Norðmenn algerlega út af
laginu með vel útfærðum leikkerfum
°g góðu einstaklingsframtaki og
góðri markvörslu. Enn einn stórsig-
ur 11-4.
Allir þessir leikir voru leiknir úti á
malbikuðum völlum í miklum hita
°g sólskini.
tJrslitaleikurinn við sænska lið
Savehof sem lék þarna á heimavelli
var hins vegar leikinn inni í íþrótta-
höllinni að viðstöddum mörg hundr-
uð áhorfendum sem studdu sín lið
dyggilega.
Þessi úrslitaleikur er líklegast einn
sá mest spennandi sem undirritaður
hefur orðið vitni að og „tekið þátt í“.
Vals - strákar mættu grimmir til
leiks og náðu forystu 3-1. Héldu þeir
þessum tveggja marka mun nær all-
an leikinn en leikið var í 2x 15 mínút-
ur. Þegar 5 mínútur voru til leiks-
loka náðu Valsmenn að auka forystu
na í 10-7 en af miklu harðfylgi jöfn-
uðu Svíar er 2 mín. voru eftir. Valur
nær forystu 11-10 þegar 30 sek. eru
eftir en tekst ekki að forða því að
Svíar jafna þegar 3 sek. eru eftir.
Jafntefli og framlenging, takk!
Nú var taugaspenna komin í há-
mark. Framlengt var þar til skorað
yrði þ.e. það lið sem fyrr skoraði
yrði sigurvegari. Eftir 7 marklausar
mínútur, fimm sóknir á hvort lið, út-
afrekstur manns út báðum liðum,
stangarskot, frábæra markvörslu,
mistök og mörg spennandi augna-
blik tókst Engilbert Sigurðssyni að
senda þrumuskot í stöng og inn, og
tryggja Val sigurinn. Æðisgenginn
fögnuður greip um sig í hópi Vals-
strákanna og áhorfenda sem flykkt-
ust inn á völlinn.
Var sigrinum innilega fagnað og
sigurskyttan, Engilbert, tolleraður
af félögum sínum.
Sigurlaunin voru Vals, þ.e. stytta,
verðlaunapeningur og íþróttataska.
Strákarnir frá íslandi höfðu sigr-
að í þessu mikla móti í Panrille, sem
kölluð er Mekka handboltans.
Landsliðsmenn Vals í framtíðinni
héldu sigurreifir beint út á flugvöll
í áttina heim.
Jok.
Ekkert ofboðslega
girnilegar....
Ákveðið hafði verið að 3. flokkur
(1979) fengi að fara til Skotlands.
h^ikill áhugi var á ferðinni og til
ntarks um það þá fóru tvö lið utan
auk þriggja fararstjóra og þjálfarans
Jóhanns Larsen. Við lögðum af stað
að morgni 28. júlí og flogið var til
^lasgow. Við dvöldum í Airdrie bæ
rétt fyrir utan Glasgow, það var
hnattspyrnufélag staðarins sem sá
um að hýsa okkur og fæða. Við sváf-
Um í kirkju en borðuðum í krá. Við
höfðum kviðið því að keppa við
Skotana vegna þess að okkur þótti
u°kkuð víst að við myndum tapa.
að reyndist þó ekki rétt, við keppt-
Um 7 leiki og unnum 6. Við lékum
m-a. við uppeldislið Motherwell og
unnum það 9-2. í þeim leik var hark-
an látin sitja í fyrirrúmi a.m.k. hjá
Skotunum t.d. fótbrotnaði einn
Valsmaður í þessum leik. Dagarnir
hjá okkur fóru að sjálfsögðu mikið í
búðarráp, fata - og plötukaup og
margt fleira.
Við sáum Celtic og Rangers spila á
Hampden Park. Eftir leikinn sem
Celtic tapaði 3-1 settumst þrír af
okkur þ.á. meðal ég inn í lestarvagn
fullan af Celtic aðdáendum sem
sungu og trölluðu alla leiðina alls
konar baráttusöngva. Á einni braut-
arstöðinni sem lestin stoppaði fór út
„heil frúga“ af Rangers aðdáendum
en eins og flestir vita er mikill rígur
milli þessara félaga. Söngurinn hafði
greinilega farið í taugarnar á þessum
Rangers mönnum því áður en við
vissum af voru þeir famir að henda
steinum og bjórdollum inn í lestina.
Einn okkar fékk stein í sig, gluggi
brotnaði í lestinni o.fl.
Það er oft talað um að Skotar séu
nískir. Það vom þeir að minnsta
kosti ekki við okkur. En mikla furðu
vakti það að aldrei vom net í mörk-
unum nema náttúrulega á stóru völl-
unum þeirra og aðeins einu sinni alla
ferðina fengum við að spila með net-
um í mörkunum. Þetta tafði mjög
leikina því að við vomm alltaf að
skora! Einnig vakti það athygli okk-
ar að á þessum stóru knattspymu-
völlum Parkhead, Ibrox og jafnvel
Hampden Park voru engar marka-
töflur og ekki einu sinni klukka.
Okkur þótti það líka skrýtið að hjá
úrvalsdeildarliði Dundee sem fær
um 20 þús. manns á hvem leik og
stundum miklu meira að þar virtist
ekki til sjúkrataska heldur hljóp
Valsmenn á ferð og flugi
49