Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 58

Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 58
Úr félagslífinu son). Síðustu tvö ár höfum við haft erlenda þjálfara, fyrst Rick Hocke- nos og síðan Tim sem er aftur með okkur í vetur“: Hvernig líkar þér við erlendu þjláfarana? „Báðir þessir menn eru frábærir þjálfarar og hafa kennt okkur strák- unum mikið i. körfu“. Er eitthvað sérstakt sem þér finnst að hægt séað gera fyrir félagsstarfið hjá yngri flokkunum? „Það þarf að koma betra skipu- lagi á æfingaleiki þannig að við fáum meiri verkefni, og æfingaleik- irnir verði líkari raunverulegri keppni. Einnig mætti koma á mynda- kvöldum þar sem allir flokkar deild- arinnar kæmu saman þannig að aukin kynning yrði milli þeirra sem stunda körfuboltann í VAL“. Ætl- arðu að halda áfram í körfunni? „Já auðvitað“. Eitthvað að lokum? „Mér finnst að það vanti hvatn- ingarhóp til þess að styðja við bakið á Úrvalsdeildarliðinu, einhvers konar stuðmenn eins og í fótboltan- um . Óhætt er að taka undir þessi orð Matthíasar og beina því hér með til framámanna í körfuknattleiksdeild- inni að slíkum „þrýstihópi“verði komið á laggirnar hið snarasta. Leifur Gústafsson fyrirliði 3. flokks í Reykjavíkurmeistaraliði Vals í 3. flokki í fyrra var stæðilegur drengur sem heitir Leifur Gústafsson. Nú ári seinna er pilturinn enn stæðilegri, orðinn sextán ára gamall og fyrirliði þriðjaflokksliðs Vals. Hvernig held- ur þú að ykkur gangi á þessum vetri? „Mér líst vel á veturinn, við höf- um keppt tvo leiki og unnið báða, annan í Reykjavíkurmótinu en hinn í íslandsmóti. Það gengu að vísu allir nema tveir úr liðinu í fyrra upp í annan flokk en strákarnir sem komu uppúr fjórða hafa reynst mjögsterk- ir. Æskilegt væri að fá fleiri leiki í keppni því með aukinni reynslu kemur meiri geta“. Tveir eldri bræður Leifs eru körfuknattleiksmenn og byrjaði hann að æfa með Val fyrir áhrif frá þeim. Leifur varð íslandsmeistari í fótbolta sl. sumar með 3. flokki Vals. „Karfan á meiri ítök í mér og yrði trúlega ofaná ef ég þyrfti að gera upp á milli“. Heldur þú að unglingastarf K K í hafi áhrif á þá unglinga sem æfa körfubolta? „Það er ekkert vafamál að æfinga- búðirnar að Laugarvatni og ung- lingalandsliðsstarfið hefur áhrif, bæði læra þeir mikið sem valdir eru til þátttöku og svo hvetur þessi möguleiki aðra til betri árangurs“. Ertu ánægður með þjálfun og að- stöðu hjá Val? „Já, Timermjöggóður þjálfariog það hafa þeir verið allir sem ég hefi verið hjá, þeir Siggi Helga, Torfi og Rick Hockenos“. Garðar Hilmarsson 2. flokkur Fyrjrliði 2. flokks í körfubolta hjá Val er Garðar Hilmarsson, 17 ára gamall (’62). Hann byrjaði að æfa á seinna ári í Minni-bolta. Við spurðum Garðar hvernig honum líkaði þjálfunin hjá Val: “Tim er mjög hæfur þjálfari og hefur kennt okkur mikið, þeir sem ég hef æft hjá áður eins og Rick Hockenos, Torfi o.fl. hafa einnig verið mjög góðir“. “Annar flokkur er nær allur nýkominn uppúr 3. flokki og okkur vantar meiri mann- skap“ sagði Garðar þegar við spurð- um um horfurnar hjá 2. flokki í vetur “en við getum þó náð góðum leikjum með þeim strákum sem við höfum“. Um unglingastarf KKÍ sagði Garðar: “Ég hef tekið þátt í sumaræfingun- um að Laugarvatni og hafði mjög gott af. Það er ekkert vafamál að tilvera unglingalandsliðsins hvetur yngri flokkana til meiri æfinga og árangurs". Æfir þú einhverjar aðrar íþróttir? “Ég æfi eingöngu körfu- bolta og ætla að halda áfram, kom- ast í úrvalsdeildarliðið“. Sverrir Ólafsson. Fyrirliði með 2. flokki karla. Hvenær hófst þú að leika með Val? Ég gekk yfir í Val úr Víkingi haustið '15 og hef leikið með Val síðan. Hvenœr gerðist þú fyrirliði? Ég varð fyrirliði síðasta haust. Hver er þinn eftirminnilegasti leikur? Það er nú erfitt að gera upp á milli, og man nú vel eftir þeim mörgum. Samt held ég að leikur okkar við KR vorið '11 í íslandsmóti 3. fl. sé mér einna efst í huga. Þetta var úrslita- leikur riðils okkar og nægði KR-ing- um jafntefli í leiknum. Við byrjuðum mjög vel og komumst í 5-1 en þá fóru KR-ingar að saxa á forskotið. Svo illa vildi til að tveir af okkur höfðu sama númer og upp úr því Þeir ungu hafa orðið 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.