Valsblaðið - 01.05.1979, Page 11
Ekki agaleysi - frekar kæruleysi
Valsblaðið: Nú virðist þið nokkuð sammála um að
Nemes hafi ekki valdið verkefni sínu þegar fór að bjáta
á. Hvað skeði þá? Kom upp agaleysi í liðinu?
Ingi Björn: -Ekki agaleysi eins og má skilja það
orð. Miklu frekar svolítið kæruleysi. Menn lögðu ekki
eins hart að sér í leikjum, enda minna skammaðir þótt
þeir gerðu það ekki. Menn fóru að mæta misjafnlega
snemma á æfingar, taka misjafnlega mikið á - þetta
fylgdist allt að. En mig langar aðeins til þess að minnast
á það sem Ólafur var að tala um áðan, það að okkur hafi
skort neista í leikjum okkar. Þetta er rétt, en ástæðan er
sú að okkur skorti þrek. Lið getur ekki leikið á fullum
krafti nema það hafi gott þrek.
Albert: Þarna komum við einnig að atriði sem ekki
er unnt að líta framhjá. Valsliðið hefur að stofni til
verið skipað sömu leikmönnum, jafnvel frá árinu 1975.
Það er því í sjálfu sér ekki óeðlilegt að það komi upp
þreyta meðal leikmannanna sjálfra og þegar svo er þarf
baeði aga og aðhald frá þjálfaranum og það var ekki
til staðar. Þjálfarinn á t.d. ekki að láta það ske að menn
mæti jafn missnemma á æfingar og þeir komust upp með
í sumar. Slíkt leiðir bara kæruleysi af sér, og það kom
t-d. vel fram er við vorum úti í Þýzkalandi að keppa í
Evrópubikarkeppninni í haust. Þá voru menn að mæta
10-20 mínútum of seint í rútuna, þegar verið var að
fara á æfingar eða skoðunarferðir. Þetta verður til þess
að leikmennirnir sem mæta á réttum tíma verða ergi-
legir, og það virðist ekki skipta neinu máli að halda
reglu á hlutunum.
Valsblaðið: Var dr. Yuri miklu harðari við ykkur.
Skammaði hann ykkur meira?
Dýri: Já, dr. Yuri skammaði okkur oft. Nemes gerði
það reyndar líka, þótt frekar væri það sjaldgæft. Hann
yar fyrst og fremst of óákveðinn.
Bjarni: Þetta er rétt. Það var of mikið aðhaldsleysi
nkjandi. Auðvitað er það þjálfarinn sem á að höggva
a þann hnút og vera harður af sér. Hann er mest með
leikmönnunum og á að móta stefnuna.
Valsblaðið: Þegar séð var að hverju stefndi. Gerði
Meistaraflokksráð og stjórn deildarinnar ekkert til
Þess að tala við þjálfarann og reyna að fá hann til þess
Qð taka í rassin á leikmönnum?
Bjarni: Jú, jú. Það var talað við þjálfarann. Hins
vegar var heildarstefnan sú, að þjálfarinn tæki allar
aieiri háttar ákvarðanir sjálfur. En honum var bent á
ýmislegt sem okkur þótti sem betur mætti fara. Nemes
hafði hins vegar ekki þá skapgerð að geta barið menn
áfram.
Dýri: Þegar okkur gekk jafn illa í mótbyrjun og raun
Ear vitni var kosin nefnd til þess að starfa með Nemes.
Epp úr stofnun hennar fóru hlutirnir að ganga betur, og
Þá varð það svo að þessi nefnd virtist einhvern veginn
Sufa upp og um leið dofnaði yfir árangrinum aftur.
Ólafur: Þessi nefnd starfaði raunar ekki eins og hún
attl að starfa, þar sem nefndarmenn voru á öndverðum
meiði við þjálfarann og það var fyrirsjáanlegt að þjálfar-
inn færi ekki eftir því sem verið var að benda honum á.
Valsblaðið: Var sú nefnd sem þið eruð nú að tala
um sett þjálfaranum til höfuðs?
Bjarni: Það má orða það þannig. í nefndinni voru
þjálfarinn, liðsstjórinn og svo Róbert Jónsson, auk
þess sem ég sat nokkra fundi með þessari nefnd. Þar voru
rædd mál eins og t.d. leikskipulag og þjálfunaraðferð,
en eins og fram hefur komið voru menn á svo öndverð-
um meiði að það var auðséð að ekkert myndi koma út
úr þessu starfi.
Ólafur: Það var raunar aldrei starfsgrundvöllur fyrir
þessa nefnd, vegna þess að þessir þrír menn fóru ekki
í þetta samstarf með því hugarfari að reyna láta gott
af sér leiða. Þar af leiðandi var tilraunin, sem ég tel
virðingarverða, unnin fyrir gýg. Það er líka annað atriði
sem við höfum ekki komið inná, en mér fannst mjög
ábótavant hjá Nemes, en það var lokaundirbúningur
leikmanna fyrir leiki. Ég fylgdist t.d. með undirbúningn-
um fyrir bikarúrslitaleikinn við Fram, og ég verð að
vera svo hreinskilinn að segja að Nemes stóð sig illa
þegar hann var að tala til leikmanna fyrir leikinn.
Valsblaðið: Var dr. Yuri góður að drýfa menn upp
fyrir leiki?
Ingi Björn: Dr. Yuri er svo sérstæður að það er varla
hægt að tala um hann í sömu andránni og aðra þjálfara.
Hann lagði leikinn allt öðru vísi upp fyrir leikmennina.
Hann fór nákvæmlega í gegnum það með leikmönnum
hverju þeir mættu búast við í leikrwiro. Hveriir væru
helstu veikleikar andstæðingsins og hver væn hans
styrkur. í æfingum hans var líka tekið sérstaklega fyrir
hvaða staða gæti hugsanlega komið upp í leikjunum, og
æfð svör við því. Þetta gerðum við ekki í sumar. Aðall
dr. Yura var hversu snjall hann var að lesa leiki and-
stæðingsins.
Knattspyrnan ekki eins góð í sumar
Valsblaðið: Ef við vindum okkar kvœði eilítið í
kross og heyrum álit ykkar á knattspyrnunni í sumar?
Bjarni: Viðhorf mitt kann nú að mótast af því að
mér finnst ekki mikið varið í knattspyrnuna ef Val
gengur ekki vel. Að því slepptu held ég samt að knatt-
spyrnan í sumar hafi ekki verið eins góð og undanfarin
ár.
Ólafur: Ég er sammála þessu. Andstæðingar okkar
unnu ekki leiki við Val vegna þess að þeir væru betri
en þeir hafa verið, heldur vegna þess að við vorum ekki
eins góðir. Hið sama á við um Akranesliðið. Þessi tvö
topplið undanfarin ár voru ekki eins góð. Hjá báðum
þessum liðum komu fram veikleikar. Það má t.d. benda
á það að markvarslan hjá Val var ekki svipur hjá þeirri
sjón sem hún var í fyrra. Enginn má þó skilja orð mín
þannig að ég sé að kenna markverðinum einum um að
ekki gekk betur, en við vitum allir að markvarslan er
stór þáttur í knattspyrnuleik og það er efítt að vinna
leiki nema hún sé í góðu lagi.
9