Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 40
mín. síðar kom Dýri Guðmundsson
öllum á óvænt með gott mark. Al-
bert skoraði síðasta markið á 72.
mín. Öruggur sigur 3-0.
Keflvíkingar hafa löngum verið
harðir í horn að taka á heimavelli
sínum, en ekkert virðist geta stöðvað
Val, eins og eitt blaðanna sagði í
fyrirsögn eftir þann leik, því Valur
vann 2-0, með mörkum Guðmundar
Þorbjörnssonar á 16. mín. og Atla
á 65. mín.
í 13. umferð sögðu margir að
Valur hefði sloppið með skrekkinn
er þeir sigruðu ÍBV á Laugardals-
vellinum með 1-0, þar sem jafntefli
var talið sanngjarnt. Það var Albert
sem skqraði markið á 70. mín.
Þetta var 6. leikur Vals i röð í 1.
deild, þarsem þeirfáekkiásigmark.
Auðvitað Valssigur mátti lesa eftir
leik Vals við FH í Kaplakrika, þar
sem Valur vann örugglega 2-0 með
mörkum Guðmundar Þorbjörns-
sonar á 25. mín. og Harðar Hilmars-
sonar á 87. mín. Nú er farið að spá
Val öruggum sigri í I. deild, enda
segir eitt dagblaðanna: Það er eins
víst og að dagur kemur eftir þennan
dag, að Valur vinnur 1. deild.
Þegar Valur mætti Þrótti í 15. um-
ferð hafði Valur leikið 11 leiki án
þess að fá á sig mark, sem er að sjálf-
sögðu mjög góður árangur. En
Þróttar sáu um, að slíkt héldi ekki
áfram og tókst að skora mark við
mikinn fögnuð. En það dugði þeim
skammt því Valsmenn skoruðu 3,
Atli tvö og Hörður Hilmarsson og
unnu leikinn örugglega 3-1. Við
erum komnir með aðra hendina á
bikarinn sagði Pétur Sveinbjarnarson
formaður knattspyrnudeildar Vals
eftir leikinn og var hinn kátasti.
f 16. umferð sátu Blikarnir enn
sem fastast á botni deildarinnar og
þeim var því mikil nauðsyn að ná sér
í stig. Þeir byrjuðu leikinn gegn Val
á Laugardalsvellinum vel, því á 2.
mín. skoruðu þeirmark. Valsmönn-
um gekk illa að finna réttu leiðina
í mark þeirra, en allt í einu á 36. mín.
fann Ingi Björn smugu og skoraði.
Þessu marki fylgdi hann vel eftir
og bætti öðrum tveim við á næstu
mínútum, eða 38. og 43. mín., eða
3 mörk á 7 mín. Vel gert.
Blikarnir skoruðu svo á 53. mín.,
en Atli skoraði 4. mark Vals á 89.
mín.
Þegar Valsmenn fóru til Akureyr-
Albert fagncir marki Jóns Einarssonar gegn
Víking í 2. umferð.
ar að leika leik sinn við K A í 17. um-
ferð skorti þá aðeins I. stig til að
tryggja sér íslandsmeistaratitilinn,
því þeir höfðu 4. stiga forskot á
Skagamenn sem enn voru í 2. sæti.
Þetta var einn slakasti leikur Vals í
mótinu og loks kom að því að Valur
tapaði stigi, því leiknum lauk án
þess að mark væri skorað.
í 18. og síðustu umferð mótsins
mættust “risarnir“ í deildinni og
hafði Valur betur í þeirri viðureign
á Laugardalsvellinum, því Ingi
Björn skoraði eina mark leiksins á
70. mín.
Valur hafði unnið glæsilegan sigur
í I. deild og hlotið alls 35 stig í 18
leikjum og skorað 45 mörk gegn 8.
Skagamenn komu næstir með 29
stig, eða 6 stigum minna.
1