Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 89

Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 89
Árangur flokkanna 1977 Lið Mót Unnin L u J T Mörk Stig % M. flokkur ... 4 2 31 21 i 3 66-25 49 79,0 I. flokkur .... 3 1 16 10 3 3 39-20 23 71,9 II. flokkur A . 3 0 17 10 5 2 34-12 25 73,5 II. flokkur B .. 2 1 5 3 0 2 10-11 6 60,0 III. flokkur A . 3 0 17 9 3 5 46-18 21 61,8 111. Ilokkur B . I 0 3 1 0 2 6-10 2 33,3 IV. flokkur A . 3 0 18 9 4 5 39-12 22 61,1 IV. flokkur B . 2 0 10 6 2 2 31-19 14 70,0 V. flokkur A . 3 0 25 16 6 3 70-22 38 76,0 V. flokkur B .. 2 I 12 8 2 2 32-9 19 75.0 V. flokkurC .. 2 0 10 7 0 3 20-8 14 70,0 Kvennaflokkur 2 0 10 6 2 2 28-6 14 70,0 30 5 174 106 34 34 421-180 246 70,7 Meistara- og I. flokkur 76,6% IV. flokkur ........... 64,3% II. flokkur............ 70.5% V. flokkur ............ 74,5% III. flokkur .......... 57,5% Kvennaflokkur........ 70,0% Leikjafjöldi í Meislaraflokki 1977 1977 Samt. 1. Bergsveinn Alfonsson 28 313 2. Sigurður Dagsson 25 269 3. Hermann Gunnarsson 4 254 4. Ingi Björn Albertsson 32 178 5. Alexander Jóhannesson ... 5 168 6. Halldór Einarsson 5 141 7. Hörður Hilmarsson 30 130 8. Vilhjálmur Kjartansson .... 2 113 9. Dýri Guðmundsson 32 112 10. Atli Eðvaldsson 34 104 11. Grímur Sæmundsson 24 104 12. Magnús Bergs 31 85 13. Albert Guðmundsson 33 84 14. Guðmundur Þorbjörnsson . 28 77 15. Guðmundur Kjartansson .. 30 33 16. óttar Sveinsson 21 30 17. Kristján Ásgeirsson 16 29 18. Ólafur Magnússon 12 19 19. Jón Einarsson 15 15 20. Magni Pétursson 12 14 21. Úlfar Másson 5 9 22. Úlfar Hróarsson 1 3 Með landsliðinu léku: Sigurður Dagsson, Ingi Björn Albertsson, Hörð- ur Hilmarsson, Atli Eðvaldsson, Guðmundur I»or- björnsson og Albert Guðmundsson. Með unglingalandsliðinu 17-18 ára léku: Guðmundur Kjartansson, Úlfar Hróarsson og Jón Einarsson. Ritari ...............lón Gunnar Zoega Bréfritari .......... Jón H. Karlsson Meðstjórnendur ... Jón Pétur Jónsson Gísli Arnar Gunnarsson Sigurbjörg Pétursdóttir Fulltrúi Vals í stjórn H.K.R.R. var Jón Leví Hilmarsson og til vara örn Höskuldsson og Þórður Sigurðsson. Stjórnin hélt 16 bókaða fundi á starfstímabilinu en illa var mætt á fundina og varð reyndin sú að starfið lenti aðallega á þremur mönnum innan stjórnarinnar en þessir menn hittust oftast er leikir voru í höllinni og var þá fundað eftir leikina og eins á meðan á þeim stóð. Verður að segja hverja sögu eins er en þessir stjórnarmenn kusu að hafa þennan háttinn á heldur en að bæta fundarsetum við þann mikla tíma sem fór í starfið. Verður nú vikið að því hverju fráfarandi stjórn kom í verk. Þjálfarar. Gengið hafði verið frá ráðningu þjálfara að mestu er stjórnin tók við og voru þjálfarar sem hér segir: M.fl. og I. fl. karla Hilmar Björnsson M.fl. og 1. fl. kvennaBjarni Jónsson 2. fl. karla .....Kristmann óskarsson 2. fl. kvenna ....Gísli Arnar Gunnarsson 3. fl. karla .....Sverrir ögmundsson 3. fl. kvenna ....Jóhann Jóel, Pétur Guð- mundsson, Anna Eðvalds- dóttir 4. fl. karla .....Karl Jónsson og Björn Björnsson 5. fl. karla .....Hjörtur Þorgilsson Skýrsla Handknattleiksdeildar 1976 - 1977 Stjórn sú sem kosin var á 18. aðalfundi dcildar- innar hinn Il.september 1976 skipti þannig meðsér verkum: Formaður ........ örn Höskuldsson Varaformaður .... Þórður Sigurðsson Gjaldkeri ....... örn Jónsson Stjórnin vill þakka öllum ofangreindum þjálf- urum fyrir þeirra störf í þágu félagsins. Nú hefur verið gengið að nokkru frá ráðningu þjálfara fyrir næsta tímabil. Gunnsteinn Skúla- son og Þórarinn Eyþórsson ætla að þjálfa meistara- flokk karla og er sérstök ástæða til þess að bjóða Gunnstein velkominn í hóp þjálfara og ekki síður ástæða til þess að fagna Þórarni sem nú tekur til óspilltra málanna að nýju hjá Val eftir nokkurt hlé. Jón H. Karlsson og Stefán Gunnarsson hafa tekið að sér 5. fl. karla og Björg Guðmundsdóttir og Pétur Guðmundsson 3. fl. kvenna. Ekki hefur er þessi orð eru rituð verið gengið frá ráðningum fleiri þjálfara en viðræður hafa farið fram og erum við vongóðir um að í vetur munum við hafa á aðskipa einvala liði þjálfara fyrir yngri flokkana og væntum við mikils árangurs af starfi þeirra. Evrópukeppni. Eitt fyrsta verkefni stjórnarinnar var að semja við andstæðinga okkar í Evrópukeppni bikarmeistara. Valur dróst á móti Red Boys frá Differdange í Luxemburg. Samkomulag varð um að leika báða leikina hér heima í sparnaðarskyni og var svo gert. Vann Valur báða leikina með talsverðum yfir- burðum, fyrri leikinn með 25 gegn 11 en síðari leikinn með 29 gegn 12. Þrátt fyrir alla sparnaðar- viðleitni og auglýsingar og blaðaskrif varð mikill halli á heimsókn þessari svo sem reikningar bera með sér. Næst dróst Valur á móti Mai frá Moskvu. Sovéska liðið kom hingað til þess að leika fyrri leikinn og hafði innan sinna raða nokkur af skær- ustu nöfnunum í handknattleiknum svo sem Maksi- mov og Klimov. Flestir bjuggust því við mikilli flengingu. En það fór á annan veg. Leikurinn varð mjög skemmtilegur og spennandi og lauk honum með sigri Mai sem skoraði 20 mörk gegn 19 mörkum Vals. Hefði sigurinn allt eins getað lent hjá Val. Var leikur þessi af mörgum talinn besti leikur vetrar- ins í Laugardalshöllinni. í Moskvu varsvo leikið 15. desember og vann þá Mai með 26 gegn 15. Fyrir báðar þessar heimsóknir voru settar upp nefndir til þess að sjá um móttökur fyrir hina er- lendu gesti. Var reyndar sama nefndin í bæði skiptin og var kölluð „pípuhattanefnd". í nefndinni voru Ægir Ferdínandsson, Jón Snæbjörnsson, Jón Kristjánsson og Þórarinn Eyþórsson. Eru nefndar- mönnum færðar hér með þakkir fyrir störf þeirra. Félagslif. Við teljum að félagslíf hafi liðið nokkuð fyrir annir stjórnarmanna en þó voru flokkar sem björguðu sér sjálflr. 3. fl. kvenna sýndi mikinn félagsþroska og unnu stúlkurnar sleitulaust allan veturinn að fjáröflun til utanlandsferðar. Þær héldu diskótek, seldu happdrættismiða, höfðu sölutjald 17. júní og gerðu ýmislegt annað til íjáröflunar. Stoð þeirra og stytta var Pétur Guðmundsson og er langt síðan annan eins félagsstarfsfork hefur rekið á okkur fjörur. Eru Pétri sérstaklega þökkuð störf hans að málefnum 3. fl. kvenna. En þó ánægjuefni væri að sjá hinn mikla félagsanda og samstöðu hjá stúlkunum var ekki minna ánægjuefni hvað foreldrar þeirra voru áhugasamir. Haldnir voru nokkrir fundir með foreldrunum og voru þeir vel sóttir. Foreldrarnir héldu kökubasar fyrir stúlkurnar og heppnaðist hann vel. Væri vissulega íhugunarvert að reyna að vekja foreldra „Vals- unganna" almcnnt betur til þess að fylgjast með börnum sínum í leik og styðja þau í félagsstarfi. Á árshátíð félagsins voru eftirtöldum veittar viðurkenningar sem hér segir: Gunnsteinn Skúlason .... 300 leiki Jón B. ólafsson 300 Stefán Gunnarsson 200 Gísli Blöndal 100 Inga Birgisdóttir 100 Harpa Guðmundsdóttir .. 100 Sigurbjörg Pétursdóttir .. 100 Þá var Þórarni Eyþórssyni veitt sérstök viður- kenning fyrir langt og heilladrjúgt starf fyrir deildina á undanförnum árum. Ferðlalög. 3. fl. kvenna fór til Randers í Danmörku í sumar og tók þátt í miklu móti og stóðu sig með mikilli prýði eins og þeirra var von og vísa. Fararstjórar voru Björg Guðmundsdóttir og Pétur Guðmunds- son, en Þórður Sigurðsson sá um undirbúning ferð- arinnar af hálfu stjórnarinnar. 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.