Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 83
LÖG FÉLAGSINS VALSKONUR
1. grein.
Félagið heitir “Valskonur“.
2. grein.
&) Markmið félagsins er að efla kynningu og sam-
stöðu félagskvenna.
b) öll fjáröflun innan félagsins, rennur til Knatt-
spyrnufélagsins Vals.
3. grein.
a) Rétt til inngöngu hafa allar konur og velunnar-
ar Vals.
b) Það skal tekið sem úrsögn úr félaginu ef konur
hafa ekki greitt félagsgjald í 2 ár.
4. grein.
a) Stjórn félagsins skipa fímm konur: Formaður,
varaformaður, ritari, gjaldkeri og einn með-
stjórnandi. Einnig tvær til vara. Engin kona má
gegna sama embætti í stjórn lengur en 6 ár í
senn.
b) Dagskrá aðalfundar félagsins skal vera, sem hér
segir:
1. Formaður félagsins setur fundinn.
2. Kosinn fundarstjóri.
3. Kosinn fundarritari.
4. Formaður félagsins leggur fram
skýrslu stjórnar um starfsemi og fram-
kvæmdir á liðnu starfsári.
5. Gjaldkeri félagsins leggur fram og út-
skýrir endurskoðaða reikninga félags-
ins fyrir liðið starfsár, til samþykktar.
6. Kosinn formaður.
7. Kosning 4 meðstjómenda.
a) Kosning 2 kvenna úr fráfarandi
stjórn.
b) Kosning 2 kvenna í stjórn.
8. Kosning 2 kvenna í vara - stjórn.
9. Ákveðið félagsgjald.
10. önnur mál.
11. Fundarslit.
c) Endurskoðendur skulu vera þeir sömu og
Knattspyrnufélagið Valur kýs á aðalfundi sín-
um.
d) Formaður, með aðstoð ritara, boðar félags-
fundi í umboði stjórnar, hefír umsjón með starf-
semi félagsins og sér um framkvæmdir þess
eftir föngum.
e) Ritari heldur gerðarbók, færir í hana alla fundar-
gerðir stjórnar og félagsfunda. Ritari heldur
einnig skrá yfir alla félaga.
0 Gjaldkeri annast innheimtu félagsgjalda og
annarra gjalda félagsins og greiðir reikninga
sem samþykktir eru. Gjaldkeri hefur á hendi allt
reikningshald. Sjóði félagsins skal geyma á
vöxtum. Stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á
sjóðum félagsins.
g) Stjórnarfundir hafa ákvörðunarrétt, ef minnst
4 meðlimir stjórnarinnar eru mættir. Ef atkvæði
eru jöfn, ræður hlutkesti. Stjórninni skal heim-
ilt að leita aðstoðar allra félagskvenna.
b) Stjórnarfundur skal haldinn, þegar formaður
eða minnst 3 meðlimir stjórnarinnar óska þess.
5. grein.
a) Reglulegir fundir félagsins skulu haidnir í 1.
viku hvers mánaðar.
b) Aðalfundur félagsins skal haldinn í mars ár
hvert.
c) Fjárvcitingar úr félagssjóði skulu veittar á al-
mennum félagsfundi.
d) Á fundum ræður afl atkvæða. Ef atkvæði eru
jöfn, sker hlutkesti úr.
e) Aðalfundur er lögmætur, ef löglega er til hans
boðað, þ.e. með viku fyrirvara.
1
6. grein.
Ef félagið hættir störfum skulu sjóðir og eignir
félagsins renna til Knattspyrnufélagsins Vals.
7. grein.
Lögum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi
og þá með samþykkt 2A hluta atkvæða.
8. grein.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Reykjavík 2. mars 1977.
Skýrsla
Knattspyrnudeildar
Vals starfsárið 1976.
Á liðnu starfsári ber hæst glæsileg frammi-
staða meistarafíokks j fslandsmóti og bikarkeppni
K.S.Í. Eftir 9 ára langþráða bið eftir fslands-
nieistaratitli varð Valur fslandsmeistari 1976 og
bikarmeistaratitillinn, sem síðast vannst 1974, var
nú endurheimtur. Þessi tvöfaldi sigur er án efa
einn glæsilegasti íþróttasigur félags í flokkaíþrótt
hér á landi, en síðastliðin 14 ár hefur ekki sama
félagið sigrað bæði í fslandsmóti og bikarkeppni.
Þá ber að minnast glæsilegrar frammistöðu 2. fl.
A, á liðnu sumri. Liðið varð Reykjavíkur- og
fslandsmeistari. Lék 18 leiki og tapaði aðeins einum
leik á sumrinu, þ.e. síðasta leik í haustmóti á móti
Þrótti með einu marki gegn engu. Þessi góða
frammistaða 2. flokks A. gefur Valsmönnum vissu-
lega ástæðu til bjarstsýni.
Eftirtaldir sigrar unnust í knattspyrnumótum á
árinu 1976:
M.fl. fslandsmót og bikarkeppni K.S.f.
1. fl. miðsumarsmót.
2. fl. A. Reykjavíkurmót og fslandsmót.
3. fl. B. Reykjavíkurmót.
4. fl. B. Reykjavíkurmót.
Innanhúsknattspyrna:
M.fl. Reykjavíkurmót og íslandsmót.
2. fl. Reykjavfkurmót.
Meistaraflokkur, vígslumót íþróttahúss Akra-
ness.
Leikmenn Vals færðu því félaginu á síðasta
starfsári 11 verðlaunabikara.
Starfsárið 1976 markar einnig tímamót í sögu
deildarinnar hvað fjármál varðar. Á árinu var ráðist
í þau stórræði að kaupa tvær íbúðir. Annars vegar
er um að ræða íbúð á jarðhæð í húsi númer 10 við
Háaleitisbraut og hins vegar 2ja herbergja íbúð á
fyrstu hæð hússins númer 53 við Hagamel. Saman-
lagt kaupverð þessara tveggja íbúða er 10,4 milljónir
króna.
Stjórn knattspyrnudeildar.
Stjórn sú, sem nú skilar af sér störfum, var
kosin á aðalfundi deildarinnar 17. mars 1976. For-
maður var kjörinn Pétur Sveinbjarnarson, vara-
formaður örn Sigurðsson, gjaldkeri Gísli Þ.
Sigurðsson, ritari Sigurður Marelsson, og með-
stjórnendur Grímur Sæmundsen, Halldór Skafta-
son, Ingvar Elísson, Jakob Jónsson og Pétur
Jónsson. f varastjórn voru kjörnir: Björgvin Her-
mannsson, Hrafn Bachmann og Snorri Guðmunds-
son. örn Sigurðsson hætti í stjórninni og Ingvar
Elísson hætti einnig um tíma, báðir vegna atvinnu
utanbæjar og tóku við störfum þeirra Björgvin
Hermannsson og Hrafn Bachmann. Pétur Jónsson
gegndi starfí varaformanns.
Fulltrúar Vals í stjórn Knattspyrnuráðs Reykja-
víkur voru: aðalfulltrúi: Elfas Hergeirsson og
varafulltrúi Róbert Jónsson.
Á aðalfundi knattspyrnuráðsins í nóvember 1976
var Elías Hergeirsson endurskipaður en Róbert
Jónsson lét af starfí varamanns og í hans stað var
skipaður Magnús ólafsson. Eru þeim Elíasi og
Róbert færðar bestu þakkir fyrir mjög góð störf
og gott samstarf við stjórnarmenn knattspyrnu-
deildar.
Þjálfun og œfingar.
Þjálfarar 1976 voru:
Meistara- og l.fl.
2. flokkur ....
3. flokkur ....
4. flokkur ....
5. flokkur ....
6. flokkur ....
Dr. Youri Ilitchev
Þórhallur Stígsson
Jóhann Larsen
Helgi Loftsson
Ingi Björn Albertsson og um
tíma ásamt honum Mile
Atli Eðvaldsson og Magnús
Bergs
Það nýmæli var tekið upp á árinu, að stofna
6. flokk. Aðsókn var mjög góð og áhugi mikill. Það
kann að vera umdeilanlegt að stofna 6. flokk og
aðgreina þessa drengi frá 5. flokki. Þarsem nokkur
önnur knattspyrnufélög í Reykjavík hafa tekið
þennan hátt upp, þá þykir ekki stætt á öðru en
Valur geri það einnig. Hins vegar skortir veru-
lega verkefni fyrir þessa yngstu félagsmenn þó svo
að þeir hafí fengið að leika nokkra æfíngaleiki.
Kemur til athugunar að skipuleggja fleiri æfínga-
leiki milli félaga.
Ferðalög erlendis.
í lok ágúst fór 3. flokkur félagsins til Færeyja í
boði Götu-íþróttafélags. Þátttakendur voru 16 leik-
menn auk þjálfarans Jóhanns Larsens og Guð-
mundar Þ. Frímannssonar fararstjóra. Leiknir voru
3 leikir:
Valur - Gl, 4-2
Valur - Klakksvik, 2-2
Valur - Fuglafjord, 5-1.
í byrjun september fór 2. flokkur til Færeyja
í boði Klakksvikur fþróttafélags. Þátttakendur voru
14 leikmenn auk Þórhalls Stígssonar þjálfara og
Björgvins Hermannssonar, fararstjóra.
Leiknir voru 4 leikir:
Valur - Klakksvík, 1-3
Valur - Götu, 3-0
Valur - Klakksvik, 6-2
Valur - HB Thorshavn, 3-3.
Eins og ætíð þegar Valsmenn eru á ferð í Fær-
eyjum fengu þeir höfðinglegar móttökur hjá hinum
gestrisnu frændum okkar.
Móttökur erlendra liða.
Tvö erlend unglingalið heimsóttu Knattspyrnu-
deild Vals á liðnu sumri og gistu í félagsheimilinu
að Hlíðarenda. Það fyrra var danskt lið frá Glad-
saxe Boldklub. í förinni voru 20 drengir ásxmt
þjálfara og fararstjóra. Dönsku drengirnir léku tvo
leiki í Reykjavfk en héldu sfðan til Vestmanna-
eyja, þar sem þeir voru gestir Þórs. Úrslit leikjanna
voru þessi:
Valur - Gladsaxc, 6-2
Breiðablik - Gladsaxe, 6-1.
81