Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 62
Úr félagslífinu
Jónsson, og ég kann mjög vel við þá
báða.
Hvernig leggst komandi Islandsmót
íþig, og hverjar telur þú sigurlíkurn-
ar?
Ég sé ekki fram á að við verðum
íslandsmeistarar þetta árið. En hins
vegar er ég vongóður með að það
geti orðið á næsta ári.
Finnst þér að það cetti að fjölga eða
fœkka œfingum, og telur þú að það
œtti að stytta eða lengja hvern
œfingatíma?
Mér finnst þær nægilega margar en
aðeins of stuttar.
Finnst þér samskipti sljórnarinnar
við flokkin vera nógu mikil, og ef
ekki, hvernig bœriþahe/zt aðstanda
að úrbœtum?
Nei. Mér finnst að við mættum vera
meira með í ráðum.
Hvað þyrfti að þínu mati að gera
fyrir flokkinn til að auka félagsand-
ann?
Til dæmis með skemmtikvöldum
og útivistarferðum.
Hvað er skemmtilegasta atvik sem
þú mannst eftir með Val?
Þegar við kepptum við Akranes
upp á Skaga.
Ertu hjátrúarfullur, og ef svo er, í
hverju er það fólgið?
Nei.
Hvernig finnst þér dómgœzlan í
leikjum?
Hún er afspyrnuléleg.
Finnst þér gilda klíkuskapur við val
liðsins?
Nei.
Hefur þú eitthvað til að bceta við að
lokum?
Nei.
Erna Lúðvíksdóttir. Kvennaflokkur
í Knattspyrnu.
Valur varð íslandsmeistari í
Kvennaflokki í knattspyrnu á
síðastliðnu sumri. Sumir, gamlir
og gráir, hrökkva við ,,kven-
fólk í knattspyrnu, og það meira
að segja í Val, -er manni þá
ekkert orðið heilagt“. En jafn-
rétti skal það heita, hvort sem
„mönnum“ líkar betur eða verr.
Við hittum að máli eina geð-
þekka, kraftmikla stúlku úr
framlínunni, sem heitir Erna
Lúðvíksdóttir.
- Hvernig hófst kvennaknatt-
spyrna í Val?
Fyrir íslandsmótið í innanhúss-
knattspyrnu veturinn 1976-77
fóru nokkrar stúlkur á fund
forráðamanna knattspyrnu-
deildar og óskuðu eftir því, að
stofnað yrði kvennalið í Val,
sem tæki síðan þátt í þessu móti.
Því var strax vel tekið, við
vorum með í mótinu en spil-
uðum aðeins einn leik gegn
Fram, sem við töpuðum 4:5.
- Hvernig var framhaldið?
Um vorið vorum við svo heppn-
ar, að Youri gerðist þjálfari
okkar með Albert Guðmundsson
sér við hlið, og þessum tveim eig-
um við mest að þakka, hvað allt
hefur gengið vel.
- Mannstu eftir fyrsta al-
mennilega knattspyrnuleiknum,
ég meina þá auðvitað í „utan-
húss“ knattspyrnu?
Já, hvort ég man. Ég skoraði
fyrsta markið, - með skalla, þótt
þú trúir því kannski ekki, og við
unnum 6:0, en þetta var gegn
Víði í Garði. Okkur gekk mjög
vel í þessu móti, og margir spáðu
okkur sigri, en við töpuðum
síðustu tveim leikjunum með
0:1 og lentum í þriðja sæti.
- Svo var það sumarið í fyrra?
Já, þá gekk allt eftir nótum,
og við urðum íslandsmeistarar
eftir harða og skemmtilega keppni.
- Hvers vegna eru stelpur í fót-
bolta. Er þetta ekki bara íþrótt
fyrir stráka?
Nei, alls ekki. Þetta er jafnt
fyrir alla, eins og flestir hlutir.
Okkur stelpunum finnst þetta
mjög skemmtileg íþrótt, og við
höfum mjög gaman og gott af
því að spila æfingaleiki við
stráka, ef þeir eru ekki orðnir
alltof miklir ,,jakar“. En okkur
fyndist sanngjarnt, að við fengj-
um að æfa og keppa meira á
,,grasi“ en verið hefur.
- Hvernig heldurðu að ykkur
gangi í sumar?
Það hefur verið mikill áhugi í
vetur, góð æfingasókn, sífelld
endurnýjun á hópnum og ágætir
þjálfarar, svo að við erum auð-
vitað staðráðnar í því að berjast
Þeir ungu hafa orðið
60