Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 5
,,Ég leik líkama minn hart oggjöri
hann aö þræli mínum...“ Þessi orð
gætu verið höfð eftir einhverjum
•þróttamanni í dag, sem hefur náð
langt í sinni grein. En svo er ekki,
heldur eru þessi orð úr Biblíunni og
það var Páll postuli sem sagði þetta
og var hann þá að tala um þann
kappleik, já þann úrslitaleik, sem
skiptir öllu máli að vinnist.
Þessi úrslitaleikur snýst um lífið
sjálft og úrslitin geta skipt sköpum
fyrir þig og mig, líf okkar allt,
bæði í þessum heimi og handan
grafar. Eitt er víst, lífið er barátta,
hörð barátta þar sem við þurfum að
nýta alla þá orku og krafta, bæði
hjarta og í trú. Þegar þú hefur gert
þetta af einlægni þá muntu þú finna,
að þú ert sem nýr maður enda ertu
endurfæddur eins og það heitir á
máli trúarinnar. Nú skaltu kynna
þér vilja hans með þig og hann er að
finna í orði hans og það finnur þú
fyrst og fremst í guðspjöllum biblí-
unnar. Lestu t.d. Markúsar-guð-
spjall vel yfir. Og mundu hann segir:
„Enginn skal slíta þig úr hendi
minni...“
Og nú eru blessuð jólin að koma
og það var einmitt á fyrstu jólunum
sem hann kom og þá hljómaði fyrst
fagnaðarboðskapurinn um hann:
„Verið óhræddir, því sjá, ég boða
Hvernig standa leikar?
líkamlega og andlega, sem okkur
standa til boða, ef sigur á að vinnast,
°g takmark okkar er sigur, um jafn-
tefli er ekki að ræða.
En um hvað stendur baráttan?
Hún stendur um það, hvort okkur
tekst að eignast jákvætt, heilbrigt og
gott líf eða ekki og hún stendur um
^eira, sáluhjálp okkar er í veði. Og
ekkert af þessu kemur af sjálfum sér.
Hvernig standa leikar hjá þér?
I starfi mínu sem prestur kemur
stundum ungt fólk til mín vegna þess
að það á í miklum erfiðleikum, alls
konar erfiðleikum og stundum svo
otiklum, að því finnst leikurinn tap-
aður og vill gefast upp. Sumir eiga
1 erfiðleikum sökum ósætti við fjöl-
skyldu og vini, hjá öðrum er hjóna-
handið í molum og enn öðrum of-
neyzla áfengis og peningaóreiða. Og
öHu þessu fylgir ótti, kvíði, vonleysi,
lífsleiði og beinlínis uppgjöf.
^egar svona er komið, hvað er þá
úl ráða, er nokkur von? Er leikurinn
kanski tapaður? Nei, leikurinn er
tapaður og það er alltaf von, já
Von fyrir alla menn. En hvers vegna
er staðan svona slæm? í lang flestum
úlfellum er það vegna þess að leik-
reglurnar hafa ekki verið virtar og
andstæðingurinn hefur fengið mörg
víti og skorað ódýr mörk. Hvaða
leikreglur er ég að tala um? Leik-
reglur lífsins, boðorð Drottins og
vilja hans fyrir líf þitt og mitt. Við
þekkjum þessar reglur og erum því
án afsökunar. Og það er lögmál í
lífinu, að sá sem viljandi brýtur boð-
orð Drottins, hann leiðir óhamingju
yfir sjálfan sig og sína.
En þrátt fyrir slæma stöðu, þá
skulum við hefja leikinn á ný ogfara
nú eftir leikreglum lífsins og nota
þær leikaðferðir sem sá setur, sem
getur tryggt sigurinn og það er Jesús
Kristur. Hann kom einmitt til þess
að þú mættir sigra í lífi þínu. En
ekkert kemur af sjálfum sér, þú
verður að æfa vel og hann hvetur þig
og segir: „Þú skalt biðja og þér mun
gefast, leita og þú munt finna, knýja
fast á og fyrir þér mun upp lokið
verða... ogsjáég er með þér alladaga
allt til enda veraldar.."
En athugum nú æfingaplan hans.
Fyrst er að snúa við frá fyrra líferni,
það að vera sífellt að brjóta leik-
reglur. Síðan að biðja guð að fyrir-
gefa öll brotin og að lokum skalt þú
biðja Jesúm að koma inn í líf þitt og
taka við honum með opnum huga og
yður mikinn fögnuð, því að yður er í
dag frelsari fæddur, sem er Kristur
Drottinn“. Jesús Kristur vill og getur
hjálpað þér til þess að sigra í lífi þínu
og eignast heilbrigt og gott líf. Það er
ekki þar með sagt, að hann lofi þér
lúxuslífi. En hann lofar að vera alltaf
hjá þér og veita þér kjark, kraft og
dug til að standast í lífinu, í blíðu
þess og stríðu.
En til þess að svo megi verða, þá
verður hann að vera virkur liðs-
maður og ekki sitja á varamanns-
bekk. Hann þarf að vera virkur i og
með þér, og þú þarft að trúa, treysta
og hlýða honum og leikaðferðum
hans í einu og öllu. „Trúin er sigur-
aflið..“ segir í orði Drottins og það er
satt.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól
og sigursælt nýtt ár.
Halldór S. Gröndal.
3