Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 92
i
Fjárhagur aðalsíjórnar.
Á síðasta aðalfundi vakti fráfarandi stjórn athygli
félagsmanna á hinni gífulega erfíðu fjárhagsstöðu
aðalstjórnar og taldi þá að ekki yrði lengur við unað,
þar eð hið alvarlega fjársvelti leiðir af sér mjög alvar-
lega stöðnun á margvíslegum framkvæmdum sem
inna þarf af hendi. Þarf ekki að orðlengja það að á
þessum hefur ekki orðið nein breyting þar eð sú
ákvörðun stjórnarinnar að notfæra sér heimild í lög-
um félagsins að innheimta 10% af félagsgjöldum
deildanna mætti slíkri mótspyrnu að stjórnin treysti
sér ekki til að beita valdi og framkvæma þessa inn-
heimtu. Fyrir bragðið hafa eins og fyrr segir fjölda
mörg verkefni setið á hakanum til mikils tjóns fyrir
félagið. Ef aðstaða félagsins hér á Hlíðarenda á eftir
að drabbast svona niður ár eftir ár félagsmönnum
öllum til vansæmdar væri betra ef félagsmenn tækju
nú höndum saman til þess að bæta úr þessu vand-
sæmdarástandi.
Þau atriði sem minnst var á í síðustu ársskýrslu
eru enn í gildi og sakar ekki að rifja þau enn frekar
upp:
1. Bætt aðstaða á skrifstofu félagsins.
2. Viðhald og viðgerðir á íþróttahúsi og félags-
heimilinu, áhaldageymslu og kaup á áhalda-
skúr í stað geymslunar.
Ráðinn nýr húsvörður og framkvœmdastjóri.
í júlí á s.l. ári barst stjórninni bréf frá Lofti
Magnússyni, húsverði þar sem hann baðst undan
frekari störfum sem húsvörður við íþróttahúsið og
jafnhliða kom samskonar ósk frá Sigurði Ólafssyni
sem taldi sig ekki lengur hafa aðstæður til að sinna
húsvörslu frekar og sömu sögu var að segja um Guð-
mund Ingimundarson, en allir þessir menn hafa
rækt þetta starf sameiginlega undanfarin ár fyrir
sáralitla þóknun og oft enga og sýnt með því ó-
mælda fórnfýsi og ræktarsemi í garð félagsins sem
vert væri að meta. Sérstakan heiður ber þó Sigurður
Ólafsson sem hefur frá upphafí hugsað um þetta hús
í stóru og smáu og mætti þess vegna reisa honum
veglega styttu í heiðursskyni eða hvaðeina sem fél-
agsmönnum gæti gert til þess að þakka Sigurði þetta
framlag hans til félagsins. Á fundi stjórnarinnar
31. ágúst í fyrra var ráðinn í stað þessara heiðurs-
manna nýr húsvörður, Guðmundur Sigurðsson. Var
þannig frá ráðningu gengið að hann tæki jafnframt
að sér viðgerðir og viðhald á íþróttahúsinu sem
svaraði 10 tíma á viku. Kom fljótlega í Ijós að þarna
hafði rekið mikinn hvalreka á fjörur Vals, því að
hinn nýji húsvörður, sem hefur þetta fyrir sitt aðal-
starf hefur skilað drjúgum árangri og hefur á þessum
tíma komið mörgu í verk í húsinu sem setið hefur á
hakanum lengi. Er ómetanlegt að hafa slíkan hús-
vörð sem Guðmund, en hann er jafnhagur á tré sem
járn, pípur og rafmagn auk þess sem hann hefur
bætt um umgengnisvenjur í húsinu og aga í fjárreið-
um búðarinnar.
Framk vœmdanefnd.
Á síðastliðnu starfsári skipuðu eftirtaldir aðilar
framkvæmdanefnd félagsins.
Þórður Þorkelsson form.
Úlfar Þórðarson
Jóhannes Bergsteinsson
Guðmundur Ásmundsson
Guðmundur Kr. Guðmundsson
Guðni Jónsson.
Félagsheimilið.
Hinn nýji húsvörður gerði úttekt á félagsheimil-
inu til þess að athuga hvað þyrfti að gera við þetta
gamla hús til þess að fullnægjandi væri og var það
langur listi sem hann taldi upp. M.a. taldi hann að
gólfíð væri ónýtt og þyrfti að endurnýja það. Raf-
magn, eldhús, salerni og hurðir þarf allt endurnýj-
unar og mikilla lagfæringa við. Var húsvörðurinn
reiðubúinn að lagfæra þessa hluti ef fjármagn væri
90
fyrir hendi og áhugi fyrir að gera þetta. Þrátt fyrir
ýmsar hugmyndir um byggingu nýs íþróttahúss og
þá í leiðinni bætt félagsaðstaða er fyrirsjáanleg þörf
fyrir þetta litla en vinalega félagsheimili í náinni
framtíð og því full ástæða til að huga betur að við-
haldi þess.
Eins og í fyrra sáu Valskonur um húsið eins og
þeim var frekast unnt, en þau hjón Aníta og Bjarni
Jónsson hafa sem fyrr annast daglegan rekstur þess.
Gamla íbúðarhúsið.
Á undanförnum árum hafa ekki orðið miklar um-
ræður um gamla íbúðarhúsið sem þau hjón Aníta og
Bjarni hafa búið í, en ástæðulaust er að leiða það
alveg hjá sér. Þetta hús er nú orðið svo gamalt og
slitið að það má heita ónýtt og afrek hjá þeim hjón-
um að geta búið þarna áfram. í vetur kom gífurlegur
leki fram í húsinu og varð Guðmundur húsvörður að
koma til hjálpar og gerði þar við húsið og kostaði
það einhver fjárútlát. Það hefur verið talinn kostur
að á svæðinu væru einhverjir íbúar til þess að vakta
svæðið en hér væri að sjálfsögðu hægt að vinna
skemmdarverk í skjóli nætur. Hinsvegar hafa komið
upp hugmyndir um að jafna þetta gamla hús við jörð
og reisa þarna frekar einhver önnur húsakynni, svo
sem Sauna - bað með tilheyrandi.
Félagssvœðið.
Varðandi vallarframkvæmdir vísast til skýrslu frá
formanni framkvæmdanefndar, Þórði Þorkelssyni,
en hann ásamt nefndarmönnum sínum hafa svo
sannarlega ekki setið auðum höndum að undan-
förnu frekar en endranær. Aðalstjórn samþykkti til-
lögur framkvæmdanefndar um að ráðast í að reisa
girðingu umhverfis íþróttasvæðið, sem hefur þann
tvíþætta tilgang að loka svæðið af meira og fyrir-
byggja óæskilega umferð um svæðið og hinsvegar
loka nýja grasvöllinn. Félagið stendur nefnilega á
þeim tímamótum núna að geta farið að spila sína
leiki í 1. deild á heimavelli viðfullkomnar aðstæður.
Til þess að takast á við þetta mikla verkefni þurfa
félagsmenn að vinna vel saman og skipulega, án
sundurlyndis. Nauðsynlegt er að aðalstjórn félags-
ins fái styrk allra deilda til að vinna þetta verk,sér-
staklega frá knattspyrnudeild félagsins. Allir sem
einn verða að takast á við þetta verkefni til heilla
fyrir félagið, því það fer ekki milli mála hversu gífur-
leg lyftistöng það gæti orðið félaginu ef hér gæti
orðið “ekta heimavöllur“, sem tryggja ætti félaginu
bætta stöðu bæði (járhagslega og félagslega.
íþróttahúsið.
Útileiga hússins var með sama hætti og undan-
farin ár, þ.e. Hlíðaskóli hafði húsið á leigu frá kl. 8 á
morgnana til kl. 17 á kvöldin, en síðan tóku hinar
ýmsu deildir félagsins við. Eftir nokkra rannsókn
sem gerð var á verði á útseldri leigu í öðrum íþrótta-
húsum og vegna almennrar hækkunar tókst að
hækka leiguna allverulega og kom í Ijós að slíkt
hefði verið hægt að gera miklu fyrr. Kom þessi
hækkun sér mjög vel vegna aukinna útgjalda við
ráðningu hins nýja húsvarðar. Eins og á undanförn-
um árum varð að miðla málum hjá hinum ýmsu
deildum félagsins vegna ásóknar þeirra í tíma í hús-
inu, sem hvergi er hægt að anna vegna mikillar eftir-
spurnar.
Ekki er þó vitað með vissu hversu lengi Hlíðar-
skóli telur sig hafa þörf fyrir íþróttahúsið fyrir leik-
fími nemenda sinns, en hafín er bygging nýs íþrótta-
húss fyri skólann.
Áður er getið um ýmsar viðgerðir og viðhald á
húsinu sem hinn nýi húsvörður annaðist, en í raun
og veru þyrfti stórátak til að endurbyggja og lagfæra
húsið. Má nefna t.d. að húsið lekur á mörgum stöð-
um. Lélegt rennsli er orðið á heita vatninu, loftræst-
ingu vantar í búningsklefa auk þess sem áður hefur
verið nefnt.
Stjórn íþróttahússins var skipuð þeim Lofti
Magnússyni, sem var formaður nefndarinnar, Hans
Guðmundssyni, Val Benediktssyni og Sigmundi
Hermundssyni auk Sigurðar Ólafssonar sem hefur
ennþá annast allt bókhald og fjárreiður hússins.
Þessi húsnefnd hefur ekki verið eins virk og stundum
áður m.a. vegna þess að hinn nýji húsvörður hefur
oftar tekið af skarið og gert það sem þurft hefur
hverju sinni. Þó er nauðsynlegt að hafa slíka hús-
stjórn, sem væri húsverði til trausts og halds, en
sennilega eru þeir tímar liðnir að menn fari að vinna
við viðgerðir og viðhald án launa í félaginu.
Valsskálinn.
Þær ánægjulcgu fréttir er hægt að segja af Vals-
skálanum að nú hefur loksins hópur manna í félag-
inu undir stjórn Bjarna Jónssonar ákveðið að hefja
gamla góða Valsskálann aftur til vegs og virðingar
eftir nokkra ára hlé. Mun ætlunin að koma saman
stjórn með haustinu og hefjast þá þegar handa með
uppbyggingu skálans.
Títtnefndur húsvörður íþróttahússins, Guð-
mundur Sigurðsson fór í vetur að skálanum og
negldi plötur fyrir alla glugga skálans en rúður
höfðu verið brotnar og brotist inn í skálann. í leið-
inni gerði Guðmundur úttekt á skálann og gaf
stjórninni skýrslu um ástand skálans og taldi upp
það sem lagfæra þyrfti og betur mætti fara og áætl-
aðan kostnað. Taldist honum svo til að með efnis-
kostnaði upp á rúma milljón mætti gera stórátak til
að reisa skálann við, en skálinn er frá upphafí mjög
vel byggður og margt ennþá mjög heillegt og vandað
og mikil verðmæti í rauninni ennþá í skálanum.
Verður að vona að þetta unga fólk geti lyft skál-
anum úr öskustónni þannig að félagar geti tekið
upp þann hátt að nýju að dvelja þarna sumar sem
vetur.
Gjafir til félagsins.
Hinn ágæti félagi Agnar Breiðfjörð veitti félag-
inu eftirgjöf á efni sem keypt var hjá honum vegna
viðgerða á rennum íþróttahússins og er það ekki
lítill stuðningur til fjárvana stjórnar þegar slíkar
gjafír berast sem nema nokkrum hundraða þús-
unda króna. Er Agnari þakkað þetta höfðinglega
bragð.
Valskonur.
Hinn ómissandi þáttur félagsins, starfsemi Vals-
kvenna hélt áfram með líku sniði á s.l. vetri. Héldu
þær fundi einu sinni í mánuði. Valskonur hafa ávallt
séð um kaffiveitingar á afmæli félagsins 11. maí.
Einnig kaffísölu á Valsdaginn, sem er eina tekju-
öflun þeirra. Þær hafa ennfremur ávallt séð um Jóla-
ball fyrir börn félagskvennanna. Þær hafa gert stór-
átak til að forða félagsheimilinu frá niðurnízlu, og
stendur hugur þeirra til enn frekari átaka fái þær
næga aðstoð frá öðrum til fjármögunar efniskaupa.
Formaður Valskvennanna er nú Ása Kristjánsdótt-
ir, en aðrar í stjórn eru: Þuríður Sölvadóttir, Hrafn-
hildur Ingólfsdóttir, Ragnheiður Lárusdóttir,
María Samúelsdóttir, Sigrún Sigvaldadóttir og
Jóhanna Bergmann.
Minningarsjóður Vals.
Stjórnin vill minna félagsmenn á minningarsjóð
Vals, en formaður hans er Guömundur Frímanns-
son, en spjöldin fást í Hverfískjötbúðinni á Hverfis-
götunni hjá Ægi Ferdinadsyni.
Fulltrúaráðið.
Ný stjórn var kosin í fulltrúaráðið á s.l. ári en for-
maður þess er nú Ægir Ferdinandsson, en með hon-
um í stjórn eru þeir Þórður Þorkelsson og Geir Guð-
mundsson. Fulltrúaráðið hefur þegar lialdið nokkra
fundi og þar af 2. fundi saman með fulltrúum hand-
knattleiksdeildarinnar og einn með fulltrúum knatt-
spyrnudeildar.
1