Valsblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 16
ÞAÐ er viss gleðitilfinning, sem
fylgir því, að vinna leik, að ég
tali nú ekki um að vinna mót. Við
leggjum mjög hart að okkur við
æfingar og það kemur óneitan-
lega að einhverju leyti niður á
fjölskyldu og vinnu. Manni líður
að sjálfsögðu vel, þegar árangur
puðsins kemur í ljós. Þetta er eins
og að afloknu vel unnu verki,
sagði Stefán Gunnarsson, fyrir-
liði meistaraflokks Vals í hand-
knattleik.
Stefán hefur leikið handknatt-
leik í 17 ár, eða síðan hann var
11 ára gamall.
Ég var lengi að þvælast niðri
í Valsheimili áður en ég fór
sjálfur að æfa og fylgdist með því
þegar Þórarinn Eyþórsson var að
þjálfa karla eins og Jón Karls-
son, sem þá var í fjórða flokki.
Stefán var einnig lengi í knatt-
spyrnunni og þótti mjög efni-
legur á því sviði, ekki síður en í
handknattleiknum.
Ég bjóð í Hlíðunum þegar ég var
krakki og var að væflast á Vals-
vellinum frá því ég varð ferða-
fær. Ég spilaði fótbolta upp í
annan flokk og lék einn leik
með meistaraflokki. En eftir að
ég komst í annan flokk stundaði
ég fótboltann lítið. Ég komst
fyrst í meistaraflokk í handbolt-
anum og tók hann þá fyrir af
krafti.
Annars hafði ég líka gaman af
fótboltanum enda hafði ég mjög
góða leiðbeinendur í báðum
íþróttagreinunum.
Stefán Gunnarsson í bardaga ham.
í yngri flokkunum þjálfaði
Stefán Sandholt okkur aðallega.
Eftir að ég komst í meistara-
flokk hafa svo menn eins og
Reynir Ólafsson, Þórarinn Ey-
þórsson, Gunnsteinn Skúlason
og Hilmar Björnsson þjálfað
okkur. En það var Þórarinn, sem
gerði þetta lið fyrst að íslands-
meisturum, árið ’74.
Hilmar Björnsson tók fyrst við
tímabilið '74-75 og hefur náð
mjög góðum árangri með lið-
inu. Fyrsta árið, sem hann var
með liðið voru margar styrkar-
stoðir gamla Valsliðsins að leika
sitt síðasta keppnistímabil. Meðal
þeirra voru menn eins og Gunn-
steinn Skúlason, Ágúst ög-
mundsson, Ólafur Jónsson og
Bergur Guðnason. í þeirra stað
hafa svo komið menn eins og
Þorbjörn Guðmundsson, Jón
Pétur Jónsson, Steindór Gunn-
arsson og Bjarni Guðmundsson.
Ég tel, að það sé algerlega
Hilmari að þakka, að þessir
menn eru þeir afburðamenn, sem
þeir eru í dag.
Þá má ekki gleyma Gísla
Blöndal, þegar verið er að minn-
ast á einhver nöfn á annað
borð. Gísli var búinn að vera
óhemju duglegur og harður, að
geta stundað íþrótt sína þrátt
fyrir meiðslin, sem hann hefur
orðið að berjast við.
- Nú hefur kjarninn, sem kom
upp '75, haldið vel saman. Eru
einhverjir að hætta?
Ja, Jón Pétur er að fara til
Þýskalands, og það hefur verið
rætt um, að jafnvel fleiri séu á
förum, svo sem Þorbjörn. Þá er
þrálátur orðrómur á kreiki um
að ég og Jón Karlsson ætlum
okkur að fara að slaka aðeins á.
- Ætlarður að hætta eftir
þennan vetur?
Þær eru nú geysilegur tíma-
þjófur, íþróttirnar. Svo vinn ég
erfiða vinnu og er kominn með
fjölskyldu. Maður æfir þetta tvö
til þrjú kvöld í viku og spilar
yfirleitt einu sinni í viku. Og þá
eru landsliðsæfmgarnar ekki tald-
ar með, og landsliðið er enn meiri
tímaþjófur. Mér taldist það til
um daginn, að á síðasta ári
hafi ég verið um tvo mánuði
erlendis með landsliðinu og
Valsliðinu.
Orðrómur um að við Jón
séum að hætta.
Segir Stefán Gunnarsson, fyrirliði meistaraflokks Vals í
handbolta.
14