Valsblaðið - 01.05.1979, Page 79
Kveðja frá
Knattspyrnu-
félaginu Val
Ingi Eyvinds
Síðsumars þessa árs, sem senn kveður, átti Valur á
þak að sjá, einum sinna tryggu og góðu félaga, Inga
Eyvinds, en hann lést hinn 9. sept. um aldur fram.
lngi var fæddur á Eyrarbakka 18. febrúar 1922, var
því aðeins 57 ára er hann hvarf félögum sínum og vinum.
Til Reykjavíkur fluttist Ingi 11 ára gamall og hér
dvaldi hann og starfaði allt til aldurstilastundar.
Ingi nam vélfræði bæði hérlendis og erlendis. Að námi
loknu hóf Ingi kennslu í iðn sinni, ogstundaði kennslu-
störfin um árabil.
Þrátt fyrir margvísleg störf að kennslumálum, gaf
Ingi sér tíma til að sinna ýmsum félagsstörfum. Áhuga-
málin voru margþætt. Meðal þeirra voru íþróttamálin
efst á blaði. Skömmu eftir að Ingi fluttist “suður“ gerðist
hann félagi í knattspyrnufélaginu Val og vissulega stóð
hann trúan vörð um hag og heill félags síns allt til hinstu
stundar.
Ingi tók þátt í knattspyrnuleikjum framan af árum
einnig í handknattleik var hann liðtækur leikmaður
ákveðinn og drenglyndur. Þá var hann um skeið for-
maður handknattleiksdeildar Vals viðgóðan orðstý. Þá
lét hann og skíðamálin til sín taka og átti sæti í stjórn
skíðaráðsins og var gjaldkeri þess um árabil. Þá var
hann um tíma formaður knattspyrnudómarafélagsins.
Og fyrir störf á því sviði var hann gerður heiðursfélagi
KRR.
Ingi hafði gaman af spilum og tafli, sem tómstunda-
skemmtan, og stjórnaði hann oft spilakvöldum hjá Val
og fór honum það, sem reyndar annað, sérlega vel úr
hendi.
Hér er aðeins stiklað á stóru um starf Inga eyvinds
innan íþróttahreyfingar höfuðstaðarins. En það vita
allir sem til þekkja og reynt hafa, að margvísleg eru
þau mál, stór og smá, sem taka þarf afstöðu til frá degi
til dags. Fór Ingi Eyvinds, í sínum störfum fyrir félag
sitt og hreyfinguna í heild, ekki varhluta þar af. En eigin-
leikar hans, skapgerð og félagslyndi ásamt meðfæddri
lægni og lipurð í umgengni við aðra leystu farsældlega
hvert vandamál, sem að höndum bar undir stjórn hans.
Valur þakkar Inga Eyvinds þau margvíslegu og giftu-
drjúgu störf sem hann á liðnum áratugum hefir innt af
hendi fyrir félagið. Við félagar Vals þökkum samfylgina
og vinarkveðjur okkar fylgja þér eftir, jafnframt látum
við í ljós innilega samúð með eiginkonu, börnum og
öðrum ættingjum.
Gunnar Vagnsson
Með fráfalli Gunnars Vagnssonar á Valur á bak að sjá
einum úr hópi sinna beztu félaga. Gunnar Vagnsson, lézt
23. sept. 1977 aðeins 59 ára að aldri. Gunnar hafði átt við
nokkra vanheilsu að stríða. En þrátt fyrir það kom
andlát hans samverkamönnunum, vinunum og félögun-
um næsta á óvart. En vill ekki svo jafnan verða við
tímamót lífs og dauða?
Allt frá því að Gunnar skipaði sér undir merki Vals,
fyrir áratugum síðan, hefir hann staðið þar traustur og
trúr í fylkingarbrjósti, og var svo allt til aldurstila-
stundar.
Valsmönnum almennt var það brátt ljóst, að í
Gunnari Vagnssyni höfðu þeir eignast dugandi og
áhugasaman félagsmálamann, sem kunni að taka rétt á
málum og fylgja þeim eftir, hvort heldur var innanfélags
eða utan. í félagsstarfinu, sem með hverju ári varð æ
umfangsmeira, óx hann með verkefnunum.
Um árabil var Gunnar formaður Vals auk þess sem
hann átti sæti í stjórninni sem meðstjórnandi. Hvort
heldur var sem formaður eða meðstjórnandi vissi hann
vilja sinn og stelndi liði sínu alls ótrauður að settu marki.
Dugnaður hans, réttsýni og traust í hvívetna var
óumdeilanlegt. Drengskapur hans var alltaf samur við
sig, hvort heldur var i leik eða starfi.
Auk hinn ýmsu stjórnarstarfa, gegndi Gunnar ýmiss
77