Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1912, Qupperneq 74
50
ÓLAFUR s. thorgeirsson:
lagslííi þeirra og framkvæmdum. Hann þótti atkvæöa
mikill og fylgdi fast og hlíföarlaust, því er honum þótti
rétt vera, viö hverja sem var aö etja. Oft átti hann viö
stríða erfiðleika er flóð úr vatninu ollu. Og árin 1900—
’02 flæddi aö lokum svo yfir eyjuna að sáðlönd öll eyði-
lögðust. Sá hann þá að þar var ekki lífvænlegt lengur
og flutti því meö konu sinni og dóttur og fósturdóttur
vestur til Grunnavatnsbygðar eftir 22. ára dvöl á eyjunni
er liann hafði gjört aö svo fögru býli og sem hafði með
öllum umbótum verið virt á 4—5000 dollara. Nú tók
stjórnin hana ,,fyrir náö“ í skiftum viðóyrkt land í Grunna-
vatnsbygð. Meðan Jóhann var í Engey stundaði hann
smáskamtalækningar, með góðum árangri. Las hann
alt af lækningarbækur, hvenær sem . hann fekk tóm
til og oft hepnast mjög vel. Hann hefir enn á
ný bygt sér vandað hús og er höfðingi heim að
sækja, bæði í sjón og raun. Jóhann er vel greindurmað-
og fróður um margt. Væri það eflaust hagur fyrir þá er
síðar meir semja landnámssögu Vestur-íslendinga, 'ef þeir
ættu greinilega frásögn frá hans hendi um ýmislegt er á
daga íslendinga dreif hér fyrstu árin, einkum frá Nova
Scotia búskapnum. Um það má eflaust segja eins og
skáldið kvað: ,,Margt sem heimurinn hafði gleymt, í
hugarborg lá öldungs geymt“. En nú er honum farin að
förlast sýn, og handastyrkurinn að bila, svo hann mun ei
fær til ritstarfa. Börn Jóhanns og Kristbjargar eru þessi:
Jón Elías, giftur Ingiríði Jónsdóttur býr á næsta landi við
föður sinn; Jóhann, giftnr Björgu Kristjánsdóttir, býr
vestur við haf í Blaine Wash; Kristján giftur Karítas
Björnsdóttur, býr einnig vestur við Kyrrahaf; Ragnheiður,
gift Ágúst Magnússyni, þau búa nú heima hjá Jóhanni;
Ástríður, ógift er hjá foreldrum sínum.
Pétur Bjarnason er fæddur 21. nóv. 1857 áKolbeins-